Tagged: open content [x]
Islenska.org opin almenningi
Á þessum annars ágæta sunnudegi íslenskrar tungu hef ég opnað fyrir notkun á nýrri rímorðabók, orðskiptu, og niðurhali á frumstæðri orðskiptilýsingu sem ég hef haft í smíðum um nokkurt skeið. Þetta er allt að finna á slóðinni islenska.org, en það er lén sem hefur staðið autt í nokkur ár, eða síðan að ég fékk þá [...]
Opin gögn og endurnýtanleg
Við félagarnir tókum okkur til og opnuðum vef, opingogn.net, til þess að reyna að gera upplýsingar um opin gögn á Íslandi aðgengileg miðlægt. Hver sem er má bæta sinni vitneskju inn, og eitthvað er þegar farið að tínast inn. Það leið ekki langur tími þangað til að ég fékk ábendingu í pósti um áhugaverða klausu [...]
Hver á opinber gögn?
Kunningi minn, Hjalli, hefur verið að taka ögn af óverðskuldaðri gagnrýni fyrir að þurfa að framfylgja lögum um höfundarétt fyrir stofnun sem hann starfar fyrir. Hann er í þeirri óþægilegri stöðu því að á sama tíma og hann neyðist til þess að passa það að höfundarréttarvarin opinber gögn séu ekki afrituð, er hann í dag [...]