Borgar.net

— Jump to the navigation index

Tagged: media

DV fjallar um tekjur bloggara

Skarast hóparnir bloggarar og lesendur DV nægilega mikið til þess að nokkrum sé sama um þetta? Eru bloggarar raunverulega áhugaverður hópur, eða eru leikarar og fréttamenn á hinum miðlinum orðin þreyttar tuggur? Hvað á að sýna fram á með þessu?
Hvað með að birta tekjur einhverra sem raunverulega mundu vera forvitnilegir. Hvað hafa td. miðlar í [...]

Published: 8. ágú 2008.

Frjálst og óháð

Hún er mjög furðuleg þessi hefð í fjölmiðlum á Íslandi að í fréttum eru birtar auglýsingar auglýsendum að kostnaðarlausu. Eina skilyrðið er að það standi “fréttatilkynning” á umslaginu sem auglýsingin kom í.
Mjólkurframleiðendur og heildsalar hafa t.d. árum saman nýtt sér þennan eiginleika – sem virðist hrjá Morgunblaðið hvað verst – og sjást reglulega frá þeim [...]

Published: 4. des 2007.

Að heyra saumnál detta

Úr frétt af Vísi:
Amy kom öllum á óvart og tróð upp á hátíðinni sem haldin var á Grosvenor House Hotel í London. Hún söng órafmagnaða útgáfu af lagi sínu Love Is A Losing Game og mátti heyra saumnál detta í salnum á meðan.
Ekki einu sinni magnari?

Published: 7. sep 2007.

H er fyrir Hilmar

Hvað ætli Geir H. Haarde sé að gera núna? Ég hef ekki heyrt neitt af honum í heilan dag? Ætli það sé allt í lagi? Það hefur vonandi ekkert komið fyrir.

Published: 15. mar 2006.

Meira Gong…

Var að horfa á fréttirnar, hreint ótrulegar! Stöð 2 sýndi m.a. myndir af öllum landskunnum íslendingum sem stundað hafa ”tai-chi”. Er tilgangur þeirra einhver annar en að bendla þessa saklausu íþróttamenn við [[http://www.fofg.org|Falun Gong]]? Hvernig dirfast þeir að vera svona heimskir?
[[http://www.ruv.is|RÚV]] var með mun betri fréttir, þá sérstaklega var kastljósið spennandi. Viðtal við [[http://www.china-embassy.is/eng/c5533.html|Wang Ronghua]], [...]

Published: 11. jún 2002.