laugardagur, 26. apr 2008
Kunningi minn, Hjalli, hefur verið að taka ögn af óverðskuldaðri gagnrýni fyrir að þurfa að framfylgja lögum um höfundarétt fyrir stofnun sem hann starfar fyrir. Hann er í þeirri óþægilegri stöðu því að á sama tíma og hann neyðist til þess að passa það að höfundarréttarvarin opinber gögn séu ekki afrituð, er hann í dag [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:05
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 15. feb 2008
Er þetta nú ekki til aðeins of mikils ætlast:
Náttúruverndarsamtök Íslands fara fram á það að ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar og forsætisráðherra standi við orð sín […]
Úr frétt af visir.is
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:59
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 22. jan 2008
Nú virðist allt benda til þess að fram undan sé ögn af efnahagskreppu. Það gæti verið pínu flókið fyrir þá sem ekki skilja efnahagsmál að átta sig á því hvernig þetta gat gerst þrátt fyrir að hægri íhaldsmenn — sem allir vita að eru eina stjórnmálafólkið sem skilur efnahag og hagfræði — hafa verið við [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:44
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 2. des 2007
Ég hef það í óspurðum fréttum að allar línur logi nú hjá lykilmeðlimum í félagi húmanista, Siðmennt. Svo virðist sem það hafi farið fyrir brjóstið á þrætugjörnum kristsmönnum að samtökin vilji láta banna litlu jólin í skólum landsins.
Fólkið hringir inn og rífst og skammast og ekkert fær það stöðvað. Ekki einu sinni þegar að meðlimir [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:18
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 30. nóv 2007
Mikið finnst mér undarlegt að klerkar skuli fá að hafa eitthvað um það að segja hvort og hvernig þeirra heimsóknum í skóla er háttað. Það er algjör frásinna hvernig sem á er litið.
Ég skil ekki alveg hver rökin eru fyrir því að hleypa klerkastéttinni í fjölmiðla að tjá sig um þetta yfirleitt. Hvernig er einhver [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
16:27
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 11. okt 2007
Já, veröldin getur svei mér verið hverful. Eina stundina er maður borgarstjóri í höfuðborg smáríkis, en svo skyndilega er maður úthrópaður svikari og pólitískt úrhrak og einhver unglingur búinn að stela starfinu manns. Það getur verið helvíti hált á toppinum og erfitt að halda fótfestu.
Ég er viss um að það er einhverja lexíu að læra [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
22:54
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 16. júl 2007
Þegar mótmæli umhverfissinna áttu sér stað nú á laugardaginn var ég staddur í vinnunni með ágætis útsýni yfir svæðið. Ég tók meira að segja myndir.
Nú skal ég skal ekki segja hvort að lögreglu hafi verið heitt í hamsi þegar hún stöðvaði fjörið. Hvort mótmælendur hefðu vikið frá fyrir sjúkrabílum á ferð. Hvort réttur til þess [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
1:08
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 15. apr 2007
Fram kom í Silfri Egils í morgun að forsætisráðherra Íslands telur ákvörðun stjórnarinnar um þátttöku Íslands í Írakstríðinu vera vatn undir brúna. Hann er eiginlega hálf þreyttur á því að fólk vilji alltaf vera að tala um þetta.
Kæri Geir. Ef ég stæli af þér bílnum þínum og þú mundir telja þig eiga sökótt við mig. [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:24
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 2. apr 2007
Einar Örn tók vasklega á lyklaborðinu í dag og hamraði saman þessa fínu færslu. Mæli með þeirri lesningu. Sérstaklega tilvitnunum sem fylgja. Sú besta að mínu mati:
Stjórnmálamenn eru kosnir til þess að stjórna. Þegar þeirra nýtur ekki lengur við tekur múgur götunar að sér stjórnina.
Ég veit ekki hver mælti þessi orð, en þau segir svo [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
1:29
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 25. okt 2006
Ég sem hélt að sjálfstæðismenn vildu ekkert vera að minna á þessa svokölluðu stóriðjustefnu eftir að þeim tókst að koma henni yfir á framsókn. Er frambjóðendum nú til skyndilega til framdráttar að vera meðmælendur virkjana?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
22:31
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 30. sep 2006
Nú vitum við flest fullvel að pyntingar virka ekki til upplýsingaöflunar. Þeir sem eru pyntaðir segja ekki satt eða rétt frá. Þeir segja einmitt mun frekar það sem þeir halda að kvalari þeirra vilji heyra til þess að pyntingum linni.
Sá vitnisburður sem fæst með þessum hætti er því engan veginn marktækur. Pyntingar virka því bara [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
18:52
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 27. maí 2006
Ég er búinn að vera að sveiflast fram og til baka eins og venjulega. Það er erfitt að vera pólitískt viðrini. Ég hef þó loksins gert upp hug minn og held að ég sé, svei mér þá, að fara að kjósa af einhverjum votti að sannfæringu í fyrsta sinn á æfi minni.
Góð heilræði til óákveðinna [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
11:44
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 29. nóv 2005
Sem framhald á ræðu minni um Tryggingastofnun ríkisins vil ég aðeins minnast á Tryggingafélög. Ég þykist nokkuð viss um að ef eitthvað svindl er í gangi einhverstaðar þá er það hjá Tryggingafélögunum.
Ég vinn hjá vátryggingarfélagi. Þetta hefur gefið mér örlitla innsýn inn í hvernig hægt er að verða ríkur á tryggingarsvikum. Það er hellings vesen, [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
18:20
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 11. nóv 2005
Ég man vel hversu erfitt mér þótti að játa það við fólk að ég væri öryrki. Mér þykir ennþá óþægilegt að segja frá því að ég hafi verið örorkubótaþegi. Ég ætla þó að koma út úr skápnum núna í von um einhver geri sér grein fyrir því hversu heimskulegar hugmyndir almennings um öryrkja eru.
Það sem [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
22:53
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 7. apr 2004
Mig langar til að vekja athygli á þessu.
Nákvæmlega svona hlutir fá mig til að örvænta um geðheilsu þingmanna okkar og viðhalda fyrirlitningu minni á stjórnvöldum hér. Ég tárfelli af reiði þegar ég les svona.
Viðbætt:
Á skodun.is er að finna tilbúið bréf sem allir geta notað til þess að angra vistmenn á Alþingi.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:30
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 16. sep 2002
Það er stutt í það að storknað hraun muni renna á ný.
Það er stutt í það að jöklar okkar munu breytast í gufuský.
Samkvæmt góðum vini mínum sem er um eðlisfræði mun fróðari en ég eru ansi litlar líkur á að spá Bubba & Utangarðsmanna komi til með að rætast. Það þarf nefnilega svo mikinn kraft [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:43
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 11. jún 2002
Var að horfa á fréttirnar, hreint ótrulegar! Stöð 2 sýndi m.a. myndir af öllum landskunnum íslendingum sem stundað hafa tai-chi. Er tilgangur þeirra einhver annar en að bendla þessa saklausu íþróttamenn við Falun Gong? Hvernig dirfast þeir að vera svona heimskir?
RÚV var með mun betri fréttir, þá sérstaklega var kastljósið spennandi. Viðtal við Wang Ronghua, [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
21:47
.
Höfundur:
Borgar .
Vistmenn á Alþingi virðast ekki gera sér grein fyrir muninum á því að stjórna og ráða landinu!? Hér á heimilinu hefur verið tekin sú ákvörðun að taka þátt í þeim mótmælum sem okkur bjóðast!
Athugið að mér er nokk sama um þennan trúarsöfnuð og ég hef enga persónulega reynslu af stjórnvöldum í Kína en ég mun [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:03
.
Höfundur:
Borgar .