miðvikudagur, 29. mar 2006
"Ég rakst á svo fallegt ljóð eftir Andra Snæ Magnason í dag og þar sem ég hefi ekki mitt eigið blogg ákvað ég að koma því á framfæri hér:
Tanka um vorið
á öðrum sumardegi
Helvítis fuglar!
hættið strax að trufla mig
ég er að reyna
að yrkja ljóð um vorið
snautið ykkur skammirnar"
Í boði Bassastingsins
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:23
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 30. jún 2005
You will reach
the poem's end.
Soon.
If you keep pressing
the enter key.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
12:47
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 9. jún 2005
Eirhab skipstjóri skutli sínum
skaut út á svartan sjá.
Stingurinn loptið með hvini klauf
svo komið varð auga vart á.
Captain Ahab his harpoon shot
out to the deep black sea.
The missle loudly clove the air
too quick for the eye to see.
Móbí Dikk um sæinn svam
með silalegri hægð.
en í því að þiggja Eirabs gjöf
var engin dýrinu þægð.
Moby Dick the sea [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:20
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 4. maí 2005
Ninjas are more bad ass than pirates!
Ninjas have better hygiene, and they are less wasteful.
Ninjas always put the toilet seat down and wash their hands after going to the bathroom.
Ninjas kill everyone and they smell like fresh flowers.
Pirates are covered in guts and man-spackle. They have food in their teeth.
Ninjas also have magical ninjutsu powers [...]
Read more...
Sent at:
16:56
.
Author:
Borgar .
miðvikudagur, 27. apr 2005
Hvessir auga hressrar
hendur höggi lenda
Knúin mærin knáa
karate í bratta
Forðist skuluð farðað
flagðið leggur bragði
Meisið víst í vasa
vörn mót geir illgjörnum
Dúndraði þessu fram í samræðum yfir MSN og verð ég að þykjast frekar sáttur við þá þróun að mér hafi tekist að setja saman eitthvað eftir reglunum1 - þótt í það skorti kenningar og á því séu [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:29
.
Höfundur:
Borgar .
Vakúmpakki vísnaskáldið
veröldinni í kvæði,
margoft þarf að magna dáldið
misjafnt fyrir gæði.
Ég mæli með kvæðaformúmi Baggalúts fyrir þá sem kunna gott að meta.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:00
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 10. apr 2005
Horinn góði, nasa gullið,
gómsætt snjáldurs gula drullið.
Í stanslausu kvefi,
með útferð úr nefi,
best er bara að éta sullið!
Líklega er ég bara ekki kominn á hærra þroskastig en þetta, en mér finnst ég ógeðslega fyndinn!
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:21
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 29. mar 2005
Auðvitað veistu alltaf best;
enginn má þér betur.
Hæglega gætirðu fengist við flest,
og fátt sem þú ekki getur.
Og víst eru flísarnar fáeinar
faldar í augunum mínum;
hvassir breyskleikans borteinar
byrgja mér jafnan sýnum.
En áður en aumum er úthlutað
aftöku og plássi á haugum,
reyndu þá gæskan að gæta að
gólfefni í eigin augum.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:29
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 21. mar 2005
Smitaði, mærði, flyti, færi,
fjölgaði, smylli, kæmi.
Ritaði, lærði, skiti, skæri,
skuldaði, ylli, næmi.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:43
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 13. mar 2005
Meeting new people and warm friendly smiles
Interresting music in all sorts of styles
Wondering longingly what the day brings
These are a few of my favorite things
Aikido practice and things from Japan
When everything works out according to plan
The bright orange sun in Icelandic springs
These are a few of my favorite things
Crispy white footpaths recently snowed
Well layed-out functioning [...]
Read more...
Sent at:
19:15
.
Author:
Borgar .
þriðjudagur, 1. mar 2005
Vegir liggja til allra átta.
Enginn ræður för.
Hugur leitar hljóðra sátta
með háðugt bros á vör.
Og haturs óhreint arðsins mein
og reiði gjörðum kænum.
Þá verður sál þín veik og ein
og volæði í miskunbænum.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:48
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 30. nóv 2004
ljósbrotshyrndur laufkvati
límhnykkjaranesti
hrímkveikjara hrærati
hrákalyfjafesti
mynsturvaki margbakstindur
millirimlafeiti
taktstífaður tóbaksvindur
taumhaldsleðurhveiti
Lesa áfram...
Sent klukkan:
10:56
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 30. sep 2004
Það er auðvitað bara mín skoðun. Aðrir gætu haft aðrar skoðanir á málinu. Það er nú samt bara þannig að ég hef oftast nær betri og réttari skoðanir á málinu en flestir. Það er auðvitað bara mín skoðun. Aðrir gætu haft aðrar skoðanir á málinu. Það er nú samt bara þannig að ég hef oftast [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
11:16
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 24. sep 2004
Ég fór að hugsa um sléttubönd í dag. Það er teoretískt ekkert svo erfitt að setja þau saman. Formúlan er þessi, þar sem hverjir fjórir bókstafir standa fyrir braglið:
xxR1 xxxx S1xx S1R2
S1xx xxxx xxR3
xxR1 xxxx S2xx S2R2
S2xx xxxx xxR3
Maður þarf einnig að passa sig á því að nota heil orð. Það gerir smíðina mun auðveldari. [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
16:49
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 23. sep 2004
Fagur er ég, fas mitt létt,
fallegt mannhelvíti.
Ber mig vel með bakið rétt,
blindur á eigin lýti.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:57
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 22. sep 2004
Að gera þig að gandi mínum,
grundir línsins strúka.
Á hnöppum vildi þeysa þínum,
þjós, um hvílu mjúka.
Blautlegur kveðskapur í tilefni þess að ég á kærustu sem hefur húmor fyrir svona.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:08
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 2. des 2003
Ég lagði ekki í að útskýra fyrir útlendingi hvað væri spennandi við texta Megasar. Eftir smá umhugsun fannst mér það bara eitthvað svo fyndið að þýða textann yfir á ensku - það er svo mikið guðlast eitthvað að ég varð bara að gera það. Furðulega þá gekk það bara alveg ótrúlega vel en ég valdi [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
3:09
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 4. júl 2003
Svenni hringdi í mig þegar ég var að sækja bílinn og sagði mér að koma á færeyska daga á morgun. Ég er að hugsa um að skella mér. Að vísu var ég búinn að tala við Hannes um dagsferð eitthvert, en það var ekki búið að festa neitt niður…
Allt getur enn í stöðunni gerst,
úrslitin hvergi [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:24
.
Höfundur:
Borgar .