Greinasafn fyrir Nördafærsla

Sunday, 15. Jun 2008

JSON for old PHP installations

I use PHP a lot. Mostly to work with existing products, or to create mockups of things that will get replaced with something else later. The great thing about PHP is that it is present in some form on nearly all servers. If you're careful to avoid version 5 features then you can pretty much expect [...] Read more...

laugardagur, 26. apr 2008

Hver á opinber gögn?

Kunningi minn, Hjalli, hefur verið að taka ögn af óverðskuldaðri gagnrýni fyrir að þurfa að framfylgja lögum um höfundarétt fyrir stofnun sem hann starfar fyrir. Hann er í þeirri óþægilegri stöðu því að á sama tíma og hann neyðist til þess að passa það að höfundarréttarvarin opinber gögn séu ekki afrituð, er hann í dag [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 27. feb 2008

What is the column index of a table cell

A peculiar but fascinating problem presented itself to me today. It was one of those; "oh yeah, I'd better look at that" kind of problems that you think you'll solve in a few minutes but eventually grow to take hours. Given a cell in a HTML table, what is it's column index? This seems like it's simple. [...] Read more...

laugardagur, 12. jan 2008

Kæra þjóðskrá

Í ljósi þess að þið eruð sekir um óafsakanlegan aumingjagang á stigi sem eingöngu ríkið fær að komast upp með, ætla ég að hjálpa. Ókeypis. Gagnagrunns skipunin sem þið eruð að leita að er eitthvað á þessa leið: ALTER TABLE `thodskra` MODIFY COLUMN `nafn` VARCHAR(250); Ég legg svo til að þegar þið byggið textaskrárnar sem þið sendið út [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 28. nóv 2007

Rafræn auðkenning og barnaníð

Ég hef vitað í nokkurn tíma, eins og margir aðrir í mínum bransa, að rafræn skilríki eru við það að komast í al­mennings­hendur. Bæði stjórn­sýslan og bankarnir fá vart vatni haldið yfir því að þetta komist á sem fyrst. Reyndar eru einhver mál óleyst enn, en svo sem ekkert sem stöðvar þetta. Ég er reyndar einn [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 11. nóv 2007

Safe fun with Object.prototype.

Lets look at two shortcommings of Javascript in todays browsers. The first is that you should stay away from Object.prototype (so as not to break other peoples programs). The second is that Javascript only has a single thread. We can fix the first using the advantage of the second. My idea is that if we have [...] Read more...

sunnudagur, 14. okt 2007

Um nettenginguna mína

Ég er búinn að vera í vandræðum með nettenginuna mína heima og þurfti að gramsa aðeins í beininum mínum. Eitt af því sem er að koma fyrir mig er að þegar ég bið um netsíður virðist ekki alltaf koma svar frá nafnaþjónum Vodafone. Ennfremur er frekar óþægilegt að í honum eru undarleg göt. Þó þeir svari, [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 13. sep 2007

Why I love open source

Something was wrong with the categories on this page. They just wouldn't produce a list of entries any more. I updated Wordpress to the latest version, and everything works again. Unfortunately, there is a bug which causes entries with 0 values in the URL's to fail - at least in my situation. I've fixed it twice [...] Read more...

mánudagur, 27. ágú 2007

Wordpress plugin: Localized categories

I write in two languages, my theme exists in both translations. Yet, theme (or Wordpress) doesn't care to fit one to the other. It was time to do something about that. What I basically wanted was to be able to place all my English entries into a category, and then attach a locale to that category [...] Read more...

mánudagur, 12. feb 2007

Lesefni handa upprennandi vefurum

Læra eins og margföldunartöfluna og þjóðsönginn: HTTP://www.w3.org/Protocols/ HTTP://www.w3.org/MarkUp/#recommendations HTTP://www.w3.org/Style/CSS/#specs Möst lesning: HTTP://www.thinkvitamin.com/features/design/stand-up-for-your-rights HTTP://webtypography.net/ HTTP://www.alistapart.com/ HTTP://diveintoaccessibility.org/ HTTP://joeclark.org/book/sashay/serialization/ HTTP://javascript.crockford.com/ HTTP://mar.anomy.net/entry/2006/10/04/09.44.54/ Fylgjast með: HTTP://blogs.msdn.com/ie/default.aspx HTTP://yuiblog.com/blog HTTP://bitesizestandards.com/ HTTP://www.webstandards.org/ HTTP://web-graphics.com/ HTTP://www.quirksmode.org/bugreports/ HTTP://webkit.org/blog/ Gúrú: HTTP://ln.hixie.ch/ HTTP://simonwillison.net/ HTTP://meyerweb.com/ HTTP://dean.edwards.name/weblog/ HTTP://mezzoblue.com/ HTTP://www.zeldman.com/ HTTP://molly.com/ HTTP://www.quirksmode.org/blog/ HTTP://www.shauninman.com/ HTTP://www.andybudd.com/ HTTP://snook.ca/jonathan/ HTTP://www.stopdesign.com/ HTTP://annevankesteren.nl/ HTTP://mar.anomy.net/ HTTP://blog.fawny.org/ HTTP://diveintomark.org/ HTTP://www.crockford.com/ CSS display: HTTP://cssvault.com/ HTTP://www.stylegala.com/ HTTP://www.cssbeauty.com/ Tæki og tól: HTTP://dean.edwards.name/packer/ HTTP://jslint.com/ HTTP://infohound.net/tidy/ HTTP://getfirebug.com/ HTTP://riddle.pl/emcalc/ HTTP://dojotoolkit.org/~david/recss.html Gott reference: HTTP://developer.mozilla.org/en/docs/Core_JavaScript_1.5_Reference HTTP://developer.mozilla.org/en/docs/Gecko_DOM_Reference Lesa áfram...

þriðjudagur, 9. jan 2007

Replacing HR elements with images

Yesterday I was presented with the problem of using an image for the HR tag. Quick googling confirmed my suspicion, that this is something a lot of people want to achieve but apparently it can't be done because of, as usual, IE's limitations. The recommendations seem to be to either wrap the HR in a div [...] Read more...

laugardagur, 9. des 2006

Javascript vs. Demoscene

What you are looking at is a javascript remake of a demoscreen from the world famous Union Demo (1989). The screen was originally designed and programed by the TNT-Crew. It firmly remains one of my all time favorite screens from my all time favorite demo. I built it yesterday as a test. The Starballs screen was [...] Read more...

föstudagur, 3. nóv 2006

Árétting

Ég hef tekið eftir smá ugg í fólki vegna nýja Internet Explorer vafrans. Það er líklega skiljanlegt miðað við lætin og hávaðann í okkur sem störfum við vefgerð. Við erum kannski búin að rífast full mikið. Fyrir ykkur sem notið ennþá Windows er það vert að taka það fram að IE7 er alls ekkert óhollur fyrir [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 17. okt 2006

Browser detection in Javascript

I have a need for a good, but not precise, browser sniffing script for purposes of web visitor logging. I have hacked together such a script. I would be very grateful if my visitors would tell me if the blue box is telling them the truth (javascript needed): It's been confirmed to work on: Mac : Safari [...] Read more...

mánudagur, 16. okt 2006

Ný síða (eða þannig)

Í tilefni af því að ég er nú (þeas. í dag) orðinn svo gamall sem af grönum má sjá, nánar til tekið þrjátíu-og-eins, eða kominn á fertugsaldurinn eins og margir halda að sé fyndið að segja… er ég búinn að fá mér örlítið virðulegri heimasíðu. Ég á reyndar eftir að laga nokkra hluti ennþá: Internet Explorer [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 13. sep 2006

Safari CSS parser bug

Here is a Safari CSS parser bug I found today: .i {border:0;.i} Put this invalid code anywhere in your CSS file and the parser will come to a grinding halt and look no further down the file. Another fine reason to validate your code. This may work as a hack as things placed below it will not show [...] Read more...

sunnudagur, 10. sep 2006

Sensible terminal in OSX

This is what I need to do to get a comfortable working environment in bash/terminal for OSX: Get and install Fink System Preferences > Sharing > Computer Name: __ Terminal > Window Settings > Keyboard Delete key sends backspace Page Down = \033[6~ Page Up = \033[5~ Home = \033[H End = \033[F vi ~/bash_profile alias ll='ls -Glh' export editor=vi […] sudo apt-get install svn-client I also mapped shift+pageing [...] Read more...

föstudagur, 8. sep 2006

Rantur um kerfisstjórnun

Þar sem ég er búinn að vera veikur í ca. heila viku og er alveg að verða viti mínu fjær af leiðindum er ég, af mikilli örvæntingu, farinn að reyna að finna mér eitthvað að gera sem ég ræð við. Eitt að því sem ég fattaði að ég gat gert var að uppfæra serverinn minn. Ég [...] Lesa áfram...

mánudagur, 14. ágú 2006

Nytsamleg regla

Mér datt það allt í einu í hug að þegar verið er að finna orðskiptingar í íslensku má stóla á það að bókstafurinn Þ myndi alltaf nýtt atkvæði. Lesa áfram...

miðvikudagur, 7. jún 2006

Worktunes

Svei, mér. Ég var að sækja mér nýjasta HVSC og hvað haldiði nema það séu fullt af vinnulögunum mínum lent þarna í safninu. Ég veit eiginlega ekki hvað mér á að finnast. Þeir eru þó allavega ekki komnir með mynd af mér ennþá, Lesa áfram...

laugardagur, 27. maí 2006

Nýtt dót

Ég fann mér OS X dashboard widget sem gefur mér möguleikan á því að skrifa færslu beint inn af skjáborðinu mínu. Eini gallinn er að nú þarf ég að drullast til þess að færa mig yfir í UTF-8 því að þetta ræður ekki við ISO-8859-1 charaktersettið sem ég er að nota. Það hefur svoldið truflað mig [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 20. apr 2006

Heimasíðugerð

Mikið er ég búinn að vera duglegur að vinna í heimasíðum undanfarið. Ég var að gera lagfæringar á Hugsanda í dag. Ég fór eins langt og ég komst með þrifnað á svarkerfinu. Verst að Textpattern er algjörlega þroskaheft á því sviði. Mér sýnist þeir ætla að laga akkúrat þetta atriði sem ég var að berjast við áðan [...] Lesa áfram...

Ný heimasíða

Ég er búinn að gefast upp á því að halda eigin vefumsjónarkerfi við og er nú búinn að skipta því út fyrir Wordpress. Ég á reyndar ennþá eftir að finna út úr því hvernig ég ætla að aðgangsstýra læstum færslum. Það ætti ekki að vera óyfirstíganlegt að skrifa einhverja viðbót fyrir kerfið sem sér um það. [...] Lesa áfram...

laugardagur, 11. feb 2006

Spurt og svarað: Andlitsleit

Spurt er: Af hverju er ekki til leitarforrit þar sem maður gæti öpplódað mynd af einhverjum og fundið myndir af svipuðu fólki? Það er í raun ekkert flókið mál að gera svona andlitsleit. Það sem maður gerir er að þú lætur eitthvað forrit reikna út einkenni hvers andlits í gögnum og skrifa niður. Svo þegar þú sendir [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 26. jan 2006

WTF dagsins

Windows: Þegar maður er að afrita mikið af gögnum (td. allt MP3 safnið sitt) ofan í eldra afrit… Af hverju er ekki Skip existing files takki fyrir skjöl sem eru þegar til? Lesa áfram...

föstudagur, 16. des 2005

XML/XSL tól?

Veit einhver um gott (ókeypis / open source) tól til þess að vinna með XSL skjöl? Mig vantar eitthvað sem getur eftirfarandi: On-the-fly Xpath/Xquery evaluation On-the-fly XSL transformations Uppfært: Treebeard? Lesa áfram...

þriðjudagur, 22. nóv 2005

Kerfistiltekt - 2. hluti

Ég setti ég bara upp referer- og commentspam varnir til prufu á þessum vef og rótarvef Undralandsins. Þetta er gert á tvo mismunandi vegu: Annars vegar er reynt að hamla það að fólk komist inn með því að skoða tilvísunarslóðina (slóðin sem það kemur frá) og senda það á clickthrough síðu ef svo er. Það er [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 16. nóv 2005

Grálistunargagnagrunnsviðmótsforritun

Ég er eitthvað slappur heima og að gramsa í undralandinu. Meðal þess sem hefur alltaf angrað mig er að ég hef ekki haft stjórn á grálistunar spamvörninni sem ég nota. Vörnin keyrir bara í bakgrunni og býr til gagnalista sem taka pláss og það er í raun engin praktís leið fyrir mig til þess að færa [...] Lesa áfram...

föstudagur, 11. nóv 2005

Kerfistiltekt

Var að skipta út Spurl og Flickr boxunum á þessari síðu fyrir nýja lausn. Sem er reyndar svoldið sniðug… Annars vegar eru RSS straumarnir frá Flickr og Spurl sóttir inn á þessa vél. Hins vegar nota ég aðgerð í kerfinu sem heitir xmlimport. Aðgerðin sækir XML og XSL skjöl og keyrir þau saman til þess að [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 1. nóv 2005

Sony Music og rootkitið hans

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að tónlistarútgefendur eru að berjast fyrir lífi sínu. Þeir eru alltaf að finna upp nýjar leiðir til þess að vernda gögnin sem við kaupum af þeim frá okkur (?). Við, heimskur almúginn, látum okkur fátt um finnast um bægslaganginn í þeim og hölum tónlistinni áfram niður af netinu, enda [...] Lesa áfram...

föstudagur, 28. okt 2005

Re-Write

Ég er búinn að vera að endurskrifa blogg kerfið mitt eina ferðina enn og virðist hafa gert óvenju margar villur. Ég er búinn að strauja þær flestar út. En ef einhver tekur eftir einhverju undarlegu vinsamlega látið þá vita, takk. Lesa áfram...

miðvikudagur, 26. okt 2005

Google Web Accelerator

Hann er kominn aftur og núna er þetta persónulegt. Google hafa ákveðið að þeir ráði hvernig vefurinn virkar. Algjörlega þvert á hinar augljósu staðreyndir og mótmæli tæknimanna um allan heim. Þar með hafa þeir samstundis unnið sér inn óvild mína. Þeir fara beint á dauðalistann með Microsoft og Verisign. Ég veit ekki hvernig þeir ætla að komast [...] Lesa áfram...

föstudagur, 21. okt 2005

Ruby on Rails

Núna ætla ég að verða Ruby meistari og búa til Ruby on Rails vefforrit. Mér er sagt að þetta séu hné randaflugunnar. Ég er reyndar aðallega að vona að þetta geti orðið til þess að minnka handavinnuna í kringum Opnu Orðabókina sem ég er að búa til. Ég læt vita hvernig gengur. Lesa áfram...

miðvikudagur, 28. sep 2005

Upprennandi svalasta tölva í heimi...

Svona kúll laptop fyrir 7.000 kall er nákvæmlega það sem veröldin þarf! Ég segi að þetta verði næsta iPod! Lesa áfram...

mánudagur, 19. sep 2005

Lagaðu mig meira

Það er svo flókið að skrifa text-processor… Ég lagaði smáatriði og núna er fjandans kerfið bilað á þessu: Úlfar (þetta á að vera blátt). Ég þarf reyndar að setja upp drupal fyrir aðra síðu og er búinn að vera að spekúlega að droppa mínu eigin kerfi fyrir drupal og aðlaga bara sérlausnirnar mínar að því kerfi. Ég [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 26. júl 2005

My only purpose is to not exist .sh

#!/bin/bash rm -f "$0" Lesa áfram...

mánudagur, 25. júl 2005

Fyrir mig

Ég tók mér loksins tíma í að klára nýja forsíðu fyrir undraland.com. Svo duglegur var ég að ég nennti meira að segja að fá hana til þess að virka á hroðbjóðinum frá Microsoft. Hef ákveðið að reyna að vera svoldið duglegur í eigin kerfi næstu daga. Mögulega nenni ég að lagfæra bögga, mögulega ekki. Kannski uppfæri [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 7. júl 2005

iframe og favicon.ico

Ég setti inn rúllu fyrir nýleg spurl hérna með hjálp RSS->HTML parsing þjónustu Bjarna á molar.is (takk Bjarni). Þetta er það sama og hann er að gera á sinni eigin síðu og mér fannst nákvæmlega ekkert athugavert við að stela hugmyndinni. Ég tek þó eftir því favicon úr þessum iframe er að stela iconinu af síðunni [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 15. jún 2005

SQL Server 2005 Roadshow

Ég er búinn að vera á, öhh, "kynningu" á Microsoft SQL Server 2005. Í allan dag. Græjan er töff. Það er ekki hægt að segja annað. Sérstaklega finnst mér bad-ass að sjá hlutina sem þeir eru að gera við XML. Það er hins vegar furðulegt hvað ég er þreyttur eftir daginn miðað við að ég sat og [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 8. jún 2005

Star Wars 3 - The review

Star Wars 3 var svo sem ok en hún var ekki nógu góð. Það var verið að reyna að troða of miklu inn í eina bíómynd. Töluvert minimalískari mynd hefði dugað. Hvað var með þetta hóstandi vélmenni? Hvaða rugl Qui-Gon tilvísun var þetta undir lokin? Hvaða djók var þessi "You love me because you're blind" díalógur? Æji, [...] Lesa áfram...

SPAM og DNS vandræði

Mikilvægi þess að vera ekki með opna SMTP gátt á netinu verður líkast til aldrei nógu vel auglýst, en það er líka mikilvægt að vera ekki með opinn DNS þjón eins og ég komst að í dag. Það sem kom fyrir var að spammari skráði DNS þjón fyrir lénið sitt á IP töluna sem þessi þjónn [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 24. maí 2005

Forritunargátan

Það var lögð fyrir mig forritunargáta áðan sem er svona: if (substr($fjoldi, strlen($fjoldi) - 1, 1) == 1     && substr($fjoldi, strlen($fjoldi) - 2, 1) != 1) Hvað gerir þetta og í hvað er það notað? Svarið er sennilega ekki augljóst en það var það fyrir mig vegna þess að ég hef gert þetta áður. Þetta athugar hvort að síðusta [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 12. maí 2005

Enn meira um persónuvernd á netinu

Bjarni talar um IP tölur. Enda fólk skiljanlega uggandi yfir nýjum lögum. Ég er reyndar ekki fyllilega sammála því að vírussmitaðar tölvur, proxy-þjónar, og milliliðir eru ekki auðveld leið til þess að dyljast. Það má vera að þetta sé auðvelt fyrir menn eins og okkur Bjarna, sem höfum þannig vitneskju og úrræði, en fyrir almenning tel [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 11. maí 2005

Til hamingju með afmælið!

Hann á rafmæli í dag Hann á rafmæli í dag Hann á rafmæl'ann Pac-Man Hann á rafmæli í dag! Hann er 25 ár'í dag Hann er 25 ár'í dag Hann er 25 ár'ann Pac-Man Hann er 25 ár'í dag! Í tilefni þess að Pac-Man er 25 ára í dag hef ég opnað allar færslur um spilakassann minn og sett þær í sér flokk. Lesa áfram...

föstudagur, 6. maí 2005

Netfriðhelgi

Ég hef áhyggjur af því Google Web Accelerator. Í fyrsta lagi gæti hann verið að vista upplýsingar varanlega. Í öðru lagi gæti hann verið að senda rangar síður á notendur. Ég veit svo sem ekki með dæmi eitt, það er samt óhugnarlegt að hugsa til þess að hlutir sem ég er að hafa fyrir því að [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 26. apr 2005

IP-Tölur og netveitur

Þykir mér nú heldur sæta tíðindum. Lesa áfram...

þriðjudagur, 12. apr 2005

RPM -hiv

Þegar maður setur inn RPM pakka á Linux kerfum þarf maður að gefa skipunina rpm með stillingunni -i (install). Þá er líka góð hugmynd að nota -h (hash style progress bar) og -v (verbose) til þess að maður sjái betur hvað er að gerast. Dag einn, fyrir mörgum tunglum síðan, var ég að sýna Gústa þetta [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 31. mar 2005

Í takmarkaðan tíma:

Einhver kjáni klúðraði DNS uppsetningunni sinni. Núna bendir lénið instantfreecosmetics.com á IP tölu undir minni stjórn. Í staðinn fyrir að láta neinn vita af þessu setti ég upp smá síðu á léninu og er eiginlega frekar bjartsýnn á að þetta lagist bara sjálfkrafa. Lesa áfram...

föstudagur, 18. mar 2005

Bú fokkíngst hú!

Vinnutölvan mín gafst upp í dag og sama hvað ég reyni þá er ég fastur í Windows XP Repair Install lúppu(tm). Það er sama hvað ég geri, vélin reynir að halda áfram að "gera við kerfið" og endurræsa eftir svona 5 mínútur. Frrrrábært! Ef ég kynni bara að slökkva á þessu. Þá gæti ég kannski [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 17. mar 2005

Leiðbeiningagerð

Ég er búinn að vera að skrifa leiðbeiningar með þessu blessaða vefumsjónarkerfi mínu síðustu daga. Ég er búinn að skrifa 20 blaðsíður og sé enn ekki fyrir endann á þessu. Hver hefði trúað því að það væri svona mikið af virkni í þessu orðið? Það auðveldar þó vissulega lífið að vera búinn að safna öllum upplýsingum [...] Lesa áfram...

föstudagur, 14. jan 2005

Þráðlaust net pt. 2

Ég áttaði mig auðvitað ekki á því að til þess að gera búið þetta til þarf ég að troða í mig heilli dós af Pringles. Ojjj! Það er semsagt ekki ennþá komið Deep Dish Cylindrical Parabolic Antenna heim… bara hálfkláruð Pringles dolla. :-/ Lesa áfram...

fimmtudagur, 23. sep 2004

UIUiuiuiuiu... Blip blip!

Ingó tókst að koma spilakassanum í nothæft ástand í gærkvöldi og við gátum spilað Pac-Man í spilakassa í gærkvöldi! Ég get engan veginn tjáð almennilega hversu hamingjusamur ég var, og er, að sjá kassann virka eins og honum var meint að gera. "Viðgerðin" var samt ekki fullnaðar. Kassinn var ekki eðlilegur í morgun þegar ég kveikti [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 22. apr 2004

Meira um Pac-Man kassann

Ég er búinn að vera að hugleiða þetta allt saman og reyna að taka ákvarðanir um hver framtíð kassans sé og held að ég sé nokkurn veginn búinn að komast að niðurstöðu. Þótt það sé mjög vafasamt athæfi ætla ég á endanum að breyta kassanum í MAME box. Það er vafasamt vegna þess að kassinn er [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 21. apr 2004

Kwaggawaggawagga....

Frá og með kvöldinu er ég er stoltur eigandi upprunalegs Pac-Man spilakassa! Já, þið lásuð þetta rétt. Ég er kúlli en þið fáið mögulega skilið með 100% nýtingu litlu vanþróuðu jarðheilanna ykkar.1 Fór og sótti græjuna og flutti hana heim til Daniels þar sem ég meika ekki að vera að færa þetta monster upp í Diggaz [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 31. des 2003

Linux á Mac PPC vél

[12:50] Internetið komið upp á vélinni og ég er að reyna að finna SSH/SCP client fyrir System 8. [12:58] HTTP://www.lysator.liu.se/~jonasw/freeware/niftyssh virðist vera málið. [13:00] Ekkert Stuffit á vélinni. :-P [13:09] HTTP://www.stuffit.com er að senda mér græjuna á hraða snigilsins. [14:03] Skrapp frá - kominn aftur og er að unstuffa. [14:18] Tengdur inná undraland.com via SSH. [14:41] HTTP://pro.wanadoo.fr/chombier/ er það sem ég [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 2. des 2003

Tölvusölumaðurinn

“Hlustaðu á þetta” sagði sölumaðurinn við okkur mömmu þar sem við stóðum fyrir framan fartölvurekkann. Svo hækkaði hann í tölvunni og spilaði fyrir okkur úmp-tzz-úmp-tzz eurotrash ravelag. Ég komst ekki hjá því að setja upp svip. “Sko,” sagði sölumaðurinn hróðugur, “meira að segja hann er hissa.” Þar með hóf hann þaulæfða ræðu um hvernig svona “hljómgæði” [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 2. júl 2003

Hamskipti

Nýi vefurinn minn er loksins kominn í loftið. Hann er svo 1000x þægilegri að skrifa á en sá gamli vegna þess að ég er búinn að forrita mitt eigið wiki kerfi. Það þýðir (á mannamáli) að ég þarf ekki lengur að skrifa HTML þegar ég vil framkvæma hluti eins og línubil. Ahhh… Vefurinn er ekki fullkomlega [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 20. maí 2003

RSS í u-beygju

Ég var að fá fyrstu auglýsinguna í gegnum RSS áðan. Þetta er mér frekar mikið áhyggjuefni (ekki að ég sé neitt að fara að missa svefn). Fyrir mér hefur RSS staðið hingað til fyrir allt sem er sniðugt og gott við upplýsingamiðlun á netinu en óumbeðnar auglýsingar eru hins vegar einmitt u.þ.b. það eina sem [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 6. maí 2003

Is "pronto" a real word?

Þrátt fyrir að vera að rembast við að reyna að mæta verkefnunum mínum er ég samt að taka mér tíma til þess að spila gamla tölvuleiki. Ég hlýt að vera endanlega búinn að missa takið á tilverunni? Ég rambaði inná ScummVM síðuna í fyrradag, prufaði svo að keyra CD útgáfuna af Sam & Max í gærkvöldi [...] Lesa áfram...

mánudagur, 31. mar 2003

Uppgjöf eða þráhyggja?

Það lítur ekki út fyrir að RSS lesarinn minn ætli að verða að veruleika. Ég er búinn að vera að klóra mér í hausnum yfir þessu apparati í allan dag. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vill hann éta 10 meg af innra minni. Það er fullkomlega óásættanlegt, sérstaklega fyrir forrit sem á að vera í bakgrunni [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 30. mar 2003

Hvað sjúkir menn gjöra...

Veruleikafirringin verður mér að falli enn einu sinni. Ég er kominn með þessa bévítans kvefpest sem er að ganga. Það er svona þegar maður heldur að sumarið sé að koma og fer að fækka fötum algerlega úr takti við veðurfar. Ég vildi að ég væri vel gefinn eða byggi á Jamaica. Ég er ekkert að [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 9. feb 2003

Tími til kominn..

Eins leiðinlegt og það er að vera veikur er ekki laust við að maður komi fullt af hlutum í verk sem hafa verið útundan. Aðallega eru þetta svona leiðinda lagfæringar sem hægt er að framkvæma í hvaða ástandi sem er, t.d. að zippa fælum og henda út á server, teikna nokkur icon, ríinstalla windows. Ég vil [...] Lesa áfram...

mánudagur, 3. feb 2003

Microsoft kemur á óvart

Ég er akkúrat núna alveg furðulostinn. Þannig er að ég er að skrifa smá Java applet sem spilar mússík og er búinn að vera að vinna í því í allan dag. Þegar ég fékk svo loks draslið til að compæla þá virkaði það nánast rétt. Nánast, vegna þess að spilunar-þráðurinn virðist ekki vilja deyja (það þýðir [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 30. jan 2003

Ég er nörd

Ég held að ég sé að versna bara í nördskunni minni ef eitthvað er. Nýjasta ruglið eru gömul demo endurgerð með Java. Ég er búinn að vera að fletta demo-scene síðum slatta undanfarið og svo virðist sem að retroismi sé eitthvað að verða hipp. Soundchip músík spiluð í sjónvarpinu og þessháttar. Ég er samt verulega [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 16. jan 2003

Java dot-Net

Í stöðugri leit að nýjum hlutum til að eyða tíma í tók ég upp á því að læra nýtt forritunarmál, nefnilega Java. Java er eitthvað sem er búið að vera að þvælast fyrir mér í nokkur ár og ég hef aldrei nennt að skoða. Ég kann í alla staði ágætlega við málið og reikna sterklega [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 28. nóv 2002

Fjör í undralandi

Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í dag á undralandinu. Ég byrjaði á svona almennri yfirferð á servernum og gerði svo smá breytingar á DNS uppsetningu. DNS er eitthvað sem ég kann sama og ekkert á. Það hefur því reynst mér best að fikta bara í draslinu þangað til að ég [...] Lesa áfram...

mánudagur, 18. nóv 2002

Úrslit SID-keppni

SID keppnin er loksins búin og var ég kosinn í 9 sæti af 30 með 388 stigum. Allir sem eru fyrir ofan mig eru þekkt nöfn úr geiranum og ég er með efsta coverlag á listanum svo að ég get ekki verið annað en vel sáttur. Lesa áfram...

föstudagur, 1. nóv 2002

Like oldschool!

Ég var að senda inn lag í SID keppni sem er í gangi á C64 portal. Mitt lag er sent in undir scene nikkinu mínu, Oedipus, sem ég notaði alltaf í gamla daga þegar ég var að demóast. Endilega farið og kjósið mig. =) Í langan tíma núna er ég búinn að vera svo hlaðinn vinnu [...] Lesa áfram...

laugardagur, 7. sep 2002

Angband

Í dag er ég ákaflega kátur karl því að ég var að taka í notkun nýja útgáfu af Hengband. Hengband er semsagt Angband varíanturinn sem ég spila. Nördalegasti tölvuleikur í heimi. Mér var bent á það fyrir nokkrum mánuðum síðan að ég væri ekki gjaldgengur sem nörd nema að ég spilaði Angband eða NetHack. Ég get [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 22. ágú 2002

Loksins hugbúnaður

Eftir fáránlega langa bið í nánast tilbúið hrúgunni minni er hugbúnaðar svæðið á undralandi komið upp. Ég var búinn að forrita þetta fyrir löngu en var ósáttur við lúkkið, eftir að hafa gert smávægilegar breytingar er þetta orðið nánast boðlegt almenningi svo að ég læt þetta bara flakka… Það er líka alltaf verið að spyrja [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 30. jún 2002

Asnalegur dagur

Undarlegt lundarfar á mér þessa helgi. Ég er ekki búinn að vilja gera neitt nema forrita. Vinir og vandamenn reyna og reyna að fá mig út - en ég vil bara ekkert gera nema vinna! Milli þess sem ég vélrita kóða á fáránlegum hraða sef ég eins og köttur (svona við og við). Þar að auki [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 16. jún 2002

Meira nördagrúsk...

Ég er loksins búinn að fá Red Hat til að virka eins og það á að gera og ég verð að segja að KDE rokkar alveg feitar en ég átti von á. Það er lítið sem hægt að setja útá vesenið sem það var að setja þetta upp því að hvert einasta vandamál sem ég [...] Lesa áfram...

föstudagur, 14. jún 2002

Linux & PHP

Eyddi fyrrihluta dags í að púsla saman nýrri vél sem á að verða linux fikt vélin mín. Það er löngu orðið tímabært að ég læri að vinna á linux og nú er semsé það rólegt hjá mér að ég get það. Gúrúið í næsta húsi lánaði mér Red-Hat diska (en mælti samt með SuSE). Nú er [...] Lesa áfram...

laugardagur, 8. jún 2002

Karamba!

Bæði Betarokk og Katrín.is linkuðu á nýju síðuna hans Jonna, sem er ekki nema 5% tilbúin ennþá… Ég er reyndar alveg mest hissa á hvað serverinn hefur mætt þessu vel, það lítur út fyrir að Geitsarinn sé bara ok eftir allt saman? Bömmer að vera ekki búinn að koma gestabókinni inn og svona en maður [...] Lesa áfram...

mánudagur, 3. jún 2002

XP blús

Gafst upp og trassaði Windows XP Pro á lappanum. Meika ekki stýrikerfi sem deyja á mánaðar fresti. Windows 2000 er nottla bara það eina rétta. Að vísu sakna ég cleartype mikið, en ég er langt kominn með að hanna letur sem ætti að blíva vel á skjánum (ha nei nei, ég er ekkert sækó). Þegar ég [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 15. maí 2002

Connection Sharing?

Fyrir nokkrum dögum setti ég upp Windows 2000 Advanced Server. Ég ákvað að nota bara innbyggða connection sharing fítusinn til að routa netinu á tölvur heimilisins (þær eru 3 + serverinn). Þetta virkaði fínt og þurfti lítið fyrir þessu að hafa nema hvað fljótlega komumst við að því að við gátum ekki sent póst né [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu