föstudagur, 7. sep 2007
Úr frétt af Vísi:
Amy kom öllum á óvart og tróð upp á hátíðinni sem haldin var á Grosvenor House Hotel í London. Hún söng órafmagnaða útgáfu af lagi sínu Love Is A Losing Game og mátti heyra saumnál detta í salnum á meðan.
Ekki einu sinni magnari?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
0:07
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 2. feb 2007
Mér finnast bíóauglýsingarnar í sjónvarpinu alveg frábærar. Það er framburðurinn þularins. Hvernig er hægt að taka japanskt orð, samurai, og bera það fram með íslenskum framburði á enska framburðinum á japönskunni?
Það er ekkert mál ef maður er viskíraddargaurinn sem er alltaf í bíó: Frá framleiðendum þe last sam-jú-ræ kemur nú […]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
0:16
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 24. jan 2007
Hermaður: Hvað höfum við hér? Romanes Eunt Domus? … Fólk sem heitir Rómverjar þeir fara húsið?
Brjánn: Það— það stendur, Rómverjar, farið heim!
Hermaður: Nei, það gerir það ekki. Hvað er latneska fyrir Rómverja? Fljótur!
Úr: Lífi Brjáns
Í kjölfar tilnefningu þessar síðu minnar sem besti einstaklingsvefurinn 2006 hefur umferð á hana aukist mjög skarpt mjög tímabundið. Þar á [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
0:01
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 16. jan 2007
Það er hreint ótrúlegt að vel menntað fullorðið fólk, sem jafnvel er vant ritstörfum, skuli láta sér detta það í hug að reyna að þéranir og véranir. Og renna auðvitað beint á rassinn með það.
Íslenski hluti internetsins á nógu erfitt með nútíma málfars- og stafsetningarvillur (sbr. þær sem er að finna hér á síðunni) að [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
20:12
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 30. des 2006
Svo virðist sem að í íslensku nútímamáli sé að festast í sessi notkun á orðinu fídus þegar átt er við tiltekna virkni eða það sem í ensku væri væntanlega kallað feature.
Ég hef búið nógu lengi á Íslandi til þess að vita það fullvel að einn einstaklingur getur algjörlega upp á sitt einsdæmi valdið svona löguðu [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
1:51
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 14. ágú 2006
Mér datt það allt í einu í hug að þegar verið er að finna orðskiptingar í íslensku má stóla á það að bókstafurinn Þ myndi alltaf nýtt atkvæði.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
11:30
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 5. ágú 2006
Mig langar til þess að hrósa Guðrúnu Kvaran, fyrir það hvað hún er dugleg að svara fyrirspurnum á Vísindavef Háskólans.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:11
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 31. mar 2006
Þegar fólk skrifar undir bréfin sín segir það sitt á hvað; kær kveðja, bestu kveðjur, kveðjur, kveðja…
Fleirtala og eintala eru notaðar eftir einhverri máltilfinningu sem mig virðst skorta. Ég hef þó aldrei heyrt neinn nota "besta kveðja". Hverju sætir?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
16:18
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 8. sep 2005
Ég er, eins og sjá má ef vel er leitað á forsíðu undralands að reyna að koma upp frjálsri opinni orðabók á netið. En nú þarf ég að biðja um aðstoð.
Þannig er að áður en ég get opnað fyrir það að hver sem er geti gert breytingar á innihaldinu (eins og stefnan er) þarf það [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
20:22
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 11. ágú 2005
Sjá Orðabók Háskólans:
Snúður, Snúð, Snúði, Snúðar
Eða:
Snúður, Snúð, Snúð, Snúðs!
Það er mín einlæga skoðun í dag að orðið "snúðs" sé fyndnast í heimi!
Lesa áfram...
Sent klukkan:
11:36
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 14. jún 2005
Mér finnst það alveg óendanlega fyndið að "spjara sig", í merkingunni að geta bjargað sér, er dregið af því að viðkomandi geti hjálparlaust komist í spjarir (klætt sig í föt).
Ef maður hugsar þetta svona þá er fyndið þegar fólk reynir að spjara sig á þýsku. Eða þegar móðurlausir höfrungakálfar spjara sig í ferskvatni. Eða dýr [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:42
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 21. mar 2005
Í lagamáli er það stundum þannig að málum er "hrundið í Hæstarétti". Hvernig virkar þetta orð?
Ég hrindi
Ég hrynti, hratt
Ég mun hrinda
Ég mundi hafa hrint, hrundið..?
Eru þetta tvö sagnorð sem eru eins í nafnhætti? Er þetta eitt orð sem er til í tveimur myndum (öxi/exi, hönd/hendi)? Hvað er málið?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
18:13
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 22. ágú 2002
Ég get ekki með orðum lýst því hvað það fer í taugarnar á mér þegar að fólk byrjar setningarnar sínar á; Ég og vinur minn þetta og hitt…. Aðallega fer þetta í mig á rituðu máli. Þetta þykir mér alveg dæmigert fyrir óvandað málfar samlanda minna (ég er þó svo sem engin fyrirmynd).
Klassískt er að [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:04
.
Höfundur:
Borgar .