þriðjudagur, 22. apr 2008
Ég var að taka á móti sendingu af mjólkurmóteiturspillunum sem ég háma í mig til þess að koma í veg fyrir einkenni mjólkuóþols. Eins og áður hefur komið fram panta ég pillurnar frá bandaríkjum í gegnum netið.
Eitthvað var ég smeikur við að núverandi efnahagsástand hefði áhrif á kostanaðinn í þetta skiptið. Svo reyndist vera.
Svo skemmtilega [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:25
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 30. jan 2008
At 3:38 in the morning on the 28th of this month, I had the pleasure of being present to witness the birth of my daughter. She weighed in at 14 marks - or 3550 grams1 - and has a slightly darker hair color (so far) than her parents.
Her mother and I have [...]
Read more...
Sent at:
1:37
.
Author:
Borgar .
sunnudagur, 22. apr 2007
Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er alltaf að borða pillur. Venjulega er þetta gegn mjólkursykri. Mig skortir þetta innbyggða kerfi til þess að melta mjólk. Þar sem mjólkursykri er bætt út í nánast öll matvæli sem seld eru út úr búð á Íslandi er þetta ekki spurning um neitt annað en nauðasjálfsvörn.
Kostnaðurinn [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
20:15
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 2. feb 2007
Ég var að fara upp um Wordpress útgáfu, í 2.1. Ég reyni að vera tilraunadýr fyrir svona hluti sjálfur áður en ég keyri uppfærslu á alla notendur. Það kom auðvitað í ljós að MySQL útgáfan sem ég var að keyra var frá því síðan á steinöld. Ég uppfærði hana í leiðinni.
Eitthvað smá þarf mögulega að [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
10:38
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 27. jan 2007
Það hefur verið mikið að gera hjá mér undanfarið. Það sér þó fyrir endann á því versta í vikulok. Fyrir utan venjulega vinnudaga er ég búinn að vera í símanum stanslaust undanfarið, milli þess sem ég leik kerfisstjóra.
Það kom auðvitað að því að gamla vefkerfið mitt, sem ég var hættur viðhaldi á, varð undir spamvaltara. [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
0:40
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 5. ágú 2006
Undralegir svona dagar þar sem maður gerir ekkert nema skrifa tölvupóst í lengri tíma.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
18:29
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 23. júl 2006
Annað sumarið í röð var planið að taka tjaldferð um austurland, en vegna þess hvað veðrið var búið að vera slæmt þetta sumar ákváðum við að fara út - bara eitthvert út
Íslenskt veðurfar er glatað, en það vissu það svosem allir. Svo þetta endaði með skoðunarferð um Stokkhólm. Ég tók engar myndir, hafði slökkt á [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
14:10
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 7. jún 2006
Ég get ekki hætt að hugsa um konuna sem keyrði framhjá mér á
Klapparstígnum um daginn. Það var eins og hún væri að keyra beint út úr tímavél.
Perm og strípur
Hvít Mazda (eða eitthvað álíka)
Of stór hvít kaðlapeysa og "scrunchy"
Drasl í bílnum
Barn í bílstól aftur í
Logandi sígaretta í munnvikinu
Líkast til mun ég aldrei komast að því hvað [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:17
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 5. jún 2006
Aldrei þessu vant er ég búinn að vera frekar hress þessa helgi. Venjan er að ég liggi í leti og reyni að leiða hjá mér óunnin heimilisstörf. Það var ekki þessa helgi.
Ég skrallaði með Bassastingnum á föstudagskvöld. Móðgaði einhverjar fullar stelpur sem reyndu að tala við mig þegar ég nennti ekkert að tala á móti.
Laugardagurinn [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:27
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 22. maí 2006
Jámm - það er rétt. Mér hefur hnykkt verið. Af hnykkjara.
Það kom mér mikið á óvart hvað hann var fljótur að greina hvað var að. Hann ætlar að braka mig aðeins meira og þá á ég víst orðinn fínn.
Svo sagði hann að ég ætti endilega að fara aftur í Aikido. Gleði! :-)
Lesa áfram...
Sent klukkan:
22:14
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 21. maí 2006
Ég er búinn að eyða helginni í að pínpússa ýmsa hluti sem hafa verið að angra mig.
Þetta byrjaði á því að ég svissaði öllum control tökkunum á iBókinni minni svo ég gæti vélritað. Bjarni benti mér á að þetta væri auðvelt. Svo nú get ég vélritað aftur! Húrra!
Næst á dagskrá var að laga terminalinn fyrir [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:06
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 5. maí 2006
Mikið hefur gengið á hjá mér undanfarið án þess að mér hafi gefist tóm til þess að rita staf um það. Einna helst er að sjá þess merki á bankafærslum mínum, en bankareikningarnir mínir eru í megrun þessa dagana. Þeir eru allavega ekki svipur hjá sjón eftir aðfarir mínar seinustu daga.
Fyrst er að segja frá [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:09
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 1. apr 2005
Hvers vegna eru allar teiknimyndasögurnar mínar eins í dag? Það er, satt best að segja, svoldið óþægileg upplifun svona snemma dags.
Pearls Before Swine, Get Fuzzy, Foxtrot^, …
Lesa áfram...
Sent klukkan:
9:33
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 3. sep 2003
Í tilefni dagsins ætla ég að rifja upp nokkuð sem gerðist fyrir nokkrum árum þegar að ég var ennþá í Playstation mod-chip bransanum.
Ég hef nú alltaf verið þannig gerður að ég framkvæmi bara það sem mér dettur í hug (svona innan skynsamlegra marka) og læt allt efasemdatal eins og vind um eyru þjóta. Þannig var [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:43
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 29. júl 2003
Fyrir utan símaruglið var þetta fínn dagur. Ég hitti Ingó í hádeginu og gaufaðist með honum fram að kvöldmat. Hann sýndi mér Rustboy og útskýrði fyrir mér allskonar dót um þrívíddargrafík sem mér þótt forvitnilegt að læra. Mér finnst mest gaman að læra nýja hluti frá fólki sem hefur brennandi áhuga á þeim. Oftast lærir [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:11
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 4. júl 2003
Svenni hringdi í mig þegar ég var að sækja bílinn og sagði mér að koma á færeyska daga á morgun. Ég er að hugsa um að skella mér. Að vísu var ég búinn að tala við Hannes um dagsferð eitthvert, en það var ekki búið að festa neitt niður…
Allt getur enn í stöðunni gerst,
úrslitin hvergi [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:24
.
Höfundur:
Borgar .
Fór út í hádeginu að ná í hjólið en slapp við að hjóla því heim. Andrea hringdi í mig þar sem ég var í strætó á leiðinni niðrí bæ og bauðst til að lána mér bílinn sinn á meðan hún væri fyrir norðan. Þar með er ég byrjaður að keyra aftur. Ég er nefnilega líka [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:22
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 3. júl 2003
Ég ákvað í hádeginu að fara og skoða mér bakpoka í 66°N í Faxafeni. Mig langar í ca. 30 lítra bakpoka með hörðu baki og lofkælikerfi, góðri hirslu að framan og helst þægilegum hólfum úr neti á hliðunum; Það mundi ekki skemma fyrir ef það væru teygjubönd á honum líka.
Mér hafði verið sagt að það [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:31
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 29. jún 2003
Fór á Snæfellsnes um helgina með Hannesi og Adda Pu. Af því að við drengir vorum bara þrír, og allir klikkaðir, var prógrammið mun stífara en ella. Við tjölduðum og tókum hlutunum rólega á föstudagskvöldinu, smá bjór og spjall bara. Svo var aftur vaknað laugardaginn og labbað upp á jökulinn leyndardómsfulla. Sem var, ótrúlega, bæði [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:54
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 22. jún 2003
Ég var ræstur í hádeginu af Hannesi sem hrópaði á mig í gegnum þráðleysuna "Þú, Esja, núna." Hvernig átti ég mögulega að neita því? Það er bara ekki hægt. Svo að ég hundskaðist framúr beddanum og hafði mig til á þeim stutta tíma sem ég hafði þangað til hann sótti mig. Doddi og Dabby mættu [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:10
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 19. jún 2003
Ég fór upp á leikvöll með Arnóri (littla frænda og) vini mínum. Við fórum í Eina Krónu og hann kenndi mér að fara í handahlaup. Það er gaman að vera lítill strákur en ég er samt meira fyrir að vera fullorðinn.
Á leikvellinum hitti ég svo undarlega pedophílíska köttinn, Rassmus, sem virtist vera kelnasti köttur í [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:37
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 17. jún 2003
Það er til "gælunafn" á nafninu mínu sem ég þoli illa að heyra. Um það bil það eina sem ég kref vini mína um er að þeir noti það ekki eða a.m.k. ekki í návist minni. Ingólfur (fljótlega að verða fyrrverandi-) vinur minn heldur að það sé húmor að nota þetta á mig í þeim [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:40
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 16. jún 2003
Kisan okkar, Lísa á afmæli í dag. Hún er einn furðulegasti köttur sem ég hef átt búið með og ég hef átt þekkt þá ófáa. Það er þó kannski ekkert undarlegt að hún sé skrítin svona miðað við…
Ég flutti í kjallaraíbúð í skipasundi á sínum tíma með þáverandi sambýliskonu minni og bröndóttu læðunni okkar. Við [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:36
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 2. jún 2003
Vaknaði í vesturbænum í morgun. Ég nýtti tækifærið og rölti niðrí miðbæ, upp laugarveginn og tók svo strætisvagn heim. Mér finnst alltaf svolítið gaman að skoða bæinn svona einn í rólegheitum, þá tekur maður betur eftir furðulegum hlutum sem fyrir augu ber. Ég glotti með sjálfum mér þegar ég labbaði framhjá gluggum merktum ónefndu fyrirtæki, [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:52
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 26. maí 2003
Júróvisjónpartí og afmæli hjá Dodda og Dabby í gærkvöldi. Ég fórnaði allri skynsemi, hellti í mig áfengi og skemmti mér konunglega. Sé auðvitað eftir öllu í dag enda hef ég ekki verið svona þunnur áður á ævinni.
Ég skreið framúr seinnipartinn í dag og er síðan búinn að eyða restinni af vökutímanum í að vorkenna sjálfum [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:12
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 20. maí 2003
Seinnipartinn í dag fór ég í Þjóðarbókhlöðuna að grúska í íslensku fyrir smá verkefni sem ég vil gera. Ég var ekki viss um að þetta væri auðveldlega framkvæmanlegt fyrir einhvern eins og mig sem kann lítið af reglum í íslensku en ég er nörd og læri þetta bara eftir þörfum. Semsagt, ég er bjartsýnn á [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
1:39
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 19. maí 2003
Helga Pé hringdi í mig í gærmorgun og spurði hvort að ég vildi koma og hitta kínverskukennarann sinn. Svenni ætlði að mæta og eitthvað fleira fólk svo að ég hélt að mér yrði örugglega óhætt. Um tvöleitið var ég kominn á Kofa Tómasar Frænda að hitta hóp fólks sem ég átti svo sannarlega ekki von [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:32
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 13. maí 2003
Ég er tiltölulega ný byrjaður að nota Outlook vegna þess að dagatals/skipulags fídusarnir heilluðu mig. Þar sem ég sat í dag algjörlega niðursokkinn í vinnuna fékk ég svo allt í einu á skjáinn hjá mér lítið skilti sem sagði "Tími hjá lækni, 15 minutes" (eða svona hér um bil).
Þetta er tími sem ég pantaði fyrir [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:08
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 20. feb 2003
Fékk símtal frá blaðamanni morgunblaðsins áðan og gat ausið úr vanþekkingarbrunninum í örugglega lengri tíma en blaðamaður átti von á. Ég kem ekki til með að verða með virtustu viðmælendum landsins með þessu áframhaldi.
Í alla staði vakti samtalið mig til umhugsunar um ýmis mál sem tengjast bloggi. T.d. bloggið sem verkfæri lýðræðis og hver framtíð [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
16:16
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 22. nóv 2002
Lenti í því í dag að þurfa að taka strætisvagn, eitthvað sem ég geri helst aldrei. Það klikkar ekki að þegar vagninn er búinn með svona 3-4 stopp kemur inn leikskólabekkur, eða eitthvað bilar (oftast hurðirnar)… jú neim it - ég hef séð það. Ég hef ákaflega slæma reynslu af því að nota SVR.
Skildi ég [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:00
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 11. okt 2002
Ég kem mér fyrir uppí rúmi og undirbý mig fyrir laptop tölv, lestur eða eitthvað þessháttar. Nema, maður raðar undir sig koddum og púðum. Þá er alltaf hægt að taka neðsta koddann og færa hann efst (fyrir hnakkann) án þess að það breyti neinu fyrir heildina!? …
Þetta kemur mér alltaf jafn mikið á óvart. Er [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:52
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 26. sep 2002
Var að koma heim af sýningu filmundurs af Battle Royale í Háskólabíói. Mynd sem allir ættu hiklaust að sjá, mér tókst að draga með mér þá engla Bassasting og Kolkrabbann.
Nú er það spurning hvort mér tekst að redda miðum á Porn Star á morgun. Hetjan sjálf verður auðvitað á staðnum, maður má nú ekki missa [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:34
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 19. jún 2002
Persónulega bloggið er loksins komið á sér síðu. Það er óhæft að vera að pósta einhverjar þvældar hugleiðingar á síðuna fyrir kerfið. Akkúrat núna nenni ég samt ekki að skrifa neitt af viti…
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:30
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 31. maí 2002
Ég var orðinn svo tjúnaður áðan að ég varð bara að taka æfingasessjón. Þetta er eitthvað sem ég ætti að gera oftar… núna er ég svo búinn áðí að ég get ekki hreyft mig. Það er mjög fín afsökun frá heimilisstöfunum. ;-)
Við bræður fórum áðan og kauptum okkur Sýn. Ekki að ég sé mikill boltamaður [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:05
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 16. maí 2002
Mig langar í nýjan síma! Gamla Nokia draslið er alveg að deyja og ég er kominn með leið á að burðast með það um allt. Hver getur reddað mér góðum díl?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:42
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 14. maí 2002
Var bara með smá hálsbólgu og að drepast í eyranu í dag… ákvað að fara til læknis þegar múmían sagði orðin sprungin hljóðhimna við mig. Doxxi komst fljótlega að því að ég er með hlustaverk eins og litlu börnin og fer að rannsaka mig betur… og hvað kemur í ljós? Mononucleosis!
Hræðilegu örlög! Nú verður maður [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:39
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 10. maí 2002
Fór með Jonna að sjá Kóngulóarmanninn í gærkveldi. Flestir gagnrýnendur voru að segja að myndin væri OK en ég hafði mínar efasemdir, verandi negatívur svartsýnn fýlupúki og aðdáandi hetjunnar frá barnæsku. Ég hefði svosem geta sagt mér það sjálfur að Willem Dafoe mundi ekki klikka en ég átti ekki von á að hann mundi vera [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:42
.
Höfundur:
Borgar .