DV fjallar um tekjur bloggara
Skarast hóparnir bloggarar og lesendur DV nægilega mikið til þess að nokkrum sé sama um þetta? Eru bloggarar raunverulega áhugaverður hópur, eða eru leikarar og fréttamenn á hinum miðlinum orðin þreyttar tuggur? Hvað á að sýna fram á með þessu?
Hvað með að birta tekjur einhverra sem raunverulega mundu vera forvitnilegir. Hvað hafa td. miðlar í laun - hversu mikla peninga hafa þeir af þeim fáfróðu og auðtrúa? Hvað hafa lyfjafræðingar í laun - er okrið að skila sér til starfsmanna? Hvað með pólska verkamenn, er verið að svína á þeim? Hvað með stéttirnar sem sífellt eru að berjast; kennarar, flugumferðarstjórar og mjólkurfræðingar - er einhver fótur fyrir þessu?
Ennfremur má benda á að ef DV vildu raunverulega hrista upp í mönnum ættu þeir að birta tekjur bloggara í einhverjum miðli sem bloggarar raunverulega lesa - til dæmis veflægt - en ekki í einhverjum pappírsgerðum leifum af miðaldahefðum. En það sést kannski best á þessu úrtaki, að blaðið er jafn hugmyndaríkt og það er vandað.

5 ummææli við “DV fjallar um tekjur bloggara”
√
Kristleifur skrifaði 10.8.2008 11:33
vei sé bloggi mogga. það hefur látið mig skammast mín fyrir vefritun því pöbullinn telur víst að við séum öll eins. ég, þú, jónvalurjensson og jenný anna.
ég held ég hafi byrjað á ævikvöldi skemmtilegrar netmenningar. við þekktumst næstum því öll. leifar hennar má sjá í linkasafninu mínu.
p.s. ég sakna ennþá muzik.is
Helga Þórey skrifaði 11.8.2008 22:02
Verði þinn vilji.
Matti skrifaði 12.8.2008 15:08
Ég gerði bara ráð fyrir að Markdown myndi virka :-)
Matti skrifaði 12.8.2008 15:08
Markdownið á þessari síðu er allt unnið af ástúð í höndunum. M.ö.o: Ég lagaði kommentið. :-)
Þetta er frábært framtak hjá ykkur. Reyndar var það svosem ekkert leyndarmál að það er meiri töggur í Vantrú en þorra fréttamanna (sem virðast halda að það sé hlutverk þeirra að miðla óskoðað því sem þeim er rétt).
Borgar skrifaði 12.8.2008 22:20