laugardagur, 12. jan 2008

Kæra þjóðskrá

Í ljósi þess að þið eruð sekir um óafsakanlegan aumingjagang á stigi sem eingöngu ríkið fær að komast upp með, ætla ég að hjálpa. Ókeypis.

Gagnagrunns skipunin sem þið eruð að leita að er eitthvað á þessa leið:

ALTER TABLE `thodskra` MODIFY COLUMN `nafn` VARCHAR(250);

Ég legg svo til að þegar þið byggið textaskrárnar sem þið sendið út að þið varpið mannanöfnum yfir í 30 stafi og skaffið þannig bæði nýja rétta skrá og "samhæfða" skrá. Það má gera það einhvern veginn svona:

nafn ~= /^(\S+).*?(\S+)$/\\1 \\2/;
nafn ~= /^(.{1,32}).*$/\\1/;

Þetta er ekki það mikið mál að fólk þurfi yfirleitt að vita af þessu. Þjóðskrá Íslands getur ekki verið að setja landsmönnum reglur um það hvað má nefna börn á þeim forsendum að hún nenni ekki að skrifa svona marga stafi.

Ef þetta er skortur á þekkingu innanhús þá á einfaldlega að hringja í verktaka og fá þetta lagað. Ég mæli með Miracle.

3 ummææli við “Kæra þjóðskrá”

  1. Ha !?

    Ég vil ekki trúa þessu.

    Addi skrifaði 12.1.2008 22:06

  2. Er þetta "vandamál" ekki búið að vera til staðar þarna ansi lengi? Spurning um að krukka aðeins í starfsmannatöflunni fyrst:

    UPDATE TABLE [thjodskra_staff] SET [nennissiggistudull] = ([nennissiggistudull]*10);

    Jóhann skrifaði 29.1.2008 13:21

  3. Já, illa ígrundað hjá mér þarna síðast, hefur víst ekki mikið upp á sig að tífalda nennisiggið ...

    Jóhann skrifaði 29.1.2008 13:28


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings