Þjóðsöngur Íslands
Hér kunngjörist að ég er hæstánægður með nýja þjóðsönginn Íslands. Mér sýnist, allavega svona við fyrstu skoðun, að hér sé smekklega búið að laga lagið til.
Lagið hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, eins og reyndar fleiri af verkum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, og ég er feginn að sjá það lagað
. Þegar fram líða stundir ætti þetta svo vonandi að þagga niður í þessu aumdarvoli um að skipa þjóðsöngnum yfir í Ísland er land þitt eða einhverja aðra eins froðu.
Nú legg ég aukinheldur til að við breytum textanum úr Íslands þúsund ár!
yfir í Íslands milljón ár!
, svona til þess að hafa aðeins meiri kraft í þessu.

Ein ummæli við “Þjóðsöngur Íslands”
Jamm, endilega föllum fram og kvökum og þökkum með titrandi tár fyrir blessaðan þjóðsönginn.
„Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.,
Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá.“
Nógur er nú þjóðarrembingurinn í okkur samt ... hvernig væri hann ef við hefðum ekki þetta haganlega gerða þrælslundarkvæði til að kæfa niður egóið?
Gunnlaugur skrifaði 2.12.2007 2:46