sunnudagur, 2. des 2007

Kristileg kaldhæðni

Ég hef það í óspurðum fréttum að allar línur logi nú hjá lykil­með­limum í félagi húmanista, Siðmennt. Svo virðist sem það hafi farið fyrir brjóstið á þrætu­gjörnum krists­mönnum að sam­tökin vilji láta banna litlu jólin í skólum landsins.

Fólkið hringir inn og rífst og skammast og ekkert fær það stöðvað. Ekki einu sinni þegar að með­limir Sið­menntar út­skýra að þetta sé hrein­lega ekki rétt, og félagið sé, hvorki á móti jólum í skólum, né hafi það völd til þess að hafa neitt um leik­skóla­málið að segja.

Ég veit ekki með Þorgerði Katrínu, hún er eflaust bara illa upp­lýst. Senni­lega eru heimildir hennar ekki betri en t.d. 24 stundir. Sem segir kannski sitt um hæst­virtan fyrsta þing­mann suð­vestur­kjör­dæmis.

Mig langar þó mest að vita hvað vakir fyrir kirkjunar mönnum. Vita þeir að þegar þeir fara með svona ósannindi í fjöl­miðlum að allt tryllist og Siðmennt fær hol­skeflu af óþarf­lega dóna­legum sím­tölum? Í því til­felli eru þeir illa inn­rættir.

Hinn mögu­leikinn er að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir af­leiðingum gjörða sinna. Þeir séu ein­fald­lega ekki að hugsa um neinn nema sjálfan sig. Í því til­felli eru þeir, tja… þið segið mér? Fyrir­mynd kristinna manna?

Er það ekki ögn kald­hæðnis­legt að þeir menn sem heimta að fá að kenna börnum okkar sið­ferði séu annað hvort illa inn­rættir lygarar, eða illa upp­lýstir sjálfs­hags­muna­seggir?

Hvernig var hún aftur, þessi gullna regla?

Ein ummæli við “Kristileg kaldhæðni”

  1. Mjög þarft innlegg í umræðuna núna. Þetta kom þér beint inn í RSS-lesarann minn.

    P.S. Svo færðu líka prik fyrir að þótt ég þoli yfirleitt ekki serif letur á vefnum er Palatino svo fallegt að ég get ómögulega kvartað.

    Kalli skrifaði 2.12.2007 16:23


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings