föstudagur, 30. nóv 2007

Um leikskólatrúboð

Mikið finnst mér undar­legt að klerkar skuli fá að hafa eitthvað um það að segja hvort og hvernig þeirra heim­sóknum í skóla er háttað. Það er algjör frá­sinna hvernig sem á er litið.

Ég skil ekki alveg hver rökin eru fyrir því að hleypa klerka­stéttinni í fjöl­miðla að tjá sig um þetta yfir­leitt. Hvernig er ein­hver sem hefur beinar tekjur af ein­hverju mark­tækur í um­ræðu um það hvort að hann megi það?

Lesendur fyrir­gefa, en ég sé ekki að þetta komi trú sem slíkri neitt við. Væri í lagi að ryk­sugu­salar, trygginga­miðlarar, eða kynningar­full­trúar stór­fyrir­tækja mættu á svæðið með markaðs­her­ferð? Mundi einhver taka mark á þeim ef þeir vældu svo í fjöl­miðlum um kúgandi há­væran minni­hluta?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings