Hvers vegna eru lög og regla?
Þegar mótmæli umhverfissinna áttu sér stað nú á laugardaginn var ég staddur í vinnunni með ágætis útsýni yfir svæðið. Ég tók meira að segja myndir.
Nú skal ég skal ekki segja hvort að lögreglu hafi verið heitt í hamsi þegar hún stöðvaði fjörið. Hvort mótmælendur hefðu vikið frá fyrir sjúkrabílum á ferð. Hvort réttur til þess að mótmæla sé hafinn yfir samfélagslega ákvörðun okkar um að treysta lögreglu til þess að halda reglu.
Þó get ég fullyrt að það leið drjúgur tími frá því að lögreglan mætti á svæðið þar til að slökkt var á græjunum. Ætli það hafi verið vegna þess að það tók 30 lögreglumenn svona langan tíma að berjast með kylfunum sínum í gegnum 60 unglinga, eða ætli þeir hafi kannski reynt að beita rökum eða fortölum fyrst?

2 ummææli við “Hvers vegna eru lög og regla?”
Að sjálfsögðu hentar það mörgum málstaðinum að fylgjendur hans verði píslavottar, en mér datt samt í hug að kannski hefði tekið svona langan tíma fyrir lögregluna að fá liðsaukann, frekar en nokkuð annað. Ég er heldur ekki viss um að þeir hafi beitt rökum. Þau afskipti sem ég hef haft af lögreglunni í kringum mótmæli benda til þess að rök þeirra einskorðist við frasann "Af því við segjum það".
Mitt traust til lögreglunnar er ekki mjög mikið eftir offorsið í kringum drenginn á staurnum einhverja menningarnóttina fyrir mörgum árum, og allt ofbeldið í kringum það. Auk þess hef ég margoft orðið vitni að afskiptaleysi lögreglunnar þegar hópur er að lumbra á einum um helgar. Mér virðist af þessu að lögreglan hafi mun meiri áhyggjur af ímynd sinni heldur en velferð hins almenna borgara.
Nonni skrifaði 2.8.2007 10:14
Óskynsaman einstakling sem hafnar samkomulagi samfélagsins má neyða til að fara eftir reglum réttlætisins (Mouffe)
Jonni skrifaði 9.8.2007 10:12