Fullt tungl
Ég er að sjá það mikið notað sem einhverskonar ábyrgðar-stick-free vegna óláta í bænum um helgina að það hafi verið fullt tungl.
Jafnvel þótt þetta væri rétt, sem þetta er ekki, þá er þetta engin afsökun fyrir því að hegða sér eins og fáviti - útskýring kannski - en ekki afsökun.
Getum við ekki alveg hætt því að vísa alltaf í þetta bull? Svona fyrst að við vitum að það er er ekki rétt.

3 ummææli við “Fullt tungl”
HTTP://www.guardian.co.uk/uk_news/story/0,,2095945,00.html
Þú deilir ekki við - öh - lögguna ;)
Svansson.net skrifaði 31.7.2007 21:26
Kannski er það ekki líffræðin sem veldur tungltryllingi, heldur félagsleg: Ef allir 'vita' að fullu tunglin eru HRESSU KVÖLDIN, þá hljóta sumir að missa sig aðeins.
Kristleifur skrifaði 1.8.2007 9:03
Sem er einmitt ástæðan fyrir því að löggan heldur að það sé allt tryllt á fullu tungli. Þeir setja fleiri á vakt, það verða fleiri mál.
Hvort ætli það sé fylgni á milli þess að fleiri lögreglumenn eru á vakt og að það endi fleiri mál á borði lögreglunar. Eða er fylgni milli þess að tunglið er fullt og það enda fleiri mál á borði lögreglunar?
Þessi frétt Guardian er alveg kostuleg. Ég get eignlega ekki ákveðið mig hvort hún er einfaldlega léleg fréttamennska eða hvort þetta er viljandi gert til þess að láta lögregluna líta út eins og kjána (sbr. seinustu setningu).
Borgar skrifaði 1.8.2007 9:52