sunnudagur, 15. apr 2007

Vatn undir brúna

Fram kom í Silfri Egils í morgun að forsætisráðherra Íslands telur ákvörðun stjórnarinnar um þátttöku Íslands í Írakstríðinu vera vatn undir brúna. Hann er eiginlega hálf þreyttur á því að fólk vilji alltaf vera að tala um þetta.

Kæri Geir. Ef ég stæli af þér bílnum þínum og þú mundir telja þig eiga sökótt við mig. Mundir þú sætta þig við það svar mitt að þetta væri nú liðið, þetta hefði bara verið ákvörðun sem ég hefði tekið í sínum tíma og væri nú orðin vatn undir brúna?

Sá sem tekur svona ákvörðun fær ekki að ákveða hvenær honum er fyrirgefið. Það er algjörlega á hendi þeirra sem verða reiðir að ákveða hvenær þeim rennur reiðin.

4 ummææli við “Vatn undir brúna”

  1. Fyndið. Ég var einmitt að hugsa það sama.

    Árni Hermann Reynisson skrifaði 18.4.2007 16:51

  2. Mikið er ég sammála!

    Lilja Sif skrifaði 20.4.2007 13:03

  3. það væri KANNSKI hægt að tala um þetta ef að við hefðum verið tekin af þessum fjandans lista hinna staðföstu þjóða...

    Helga Þórey skrifaði 20.4.2007 20:49

  4. Það ætti að tala meira um þetta. Það er ekki nóg að menn eins og Þráinn Bertelsson og Hallgrímur Helgason tjái óánægju sína í fréttablaðinu (og annars staðar). Við þurfum að vera eins og biluð plata þangað til eitthvað gerist. Eina leiðin til að hreyfa við stórum steinum er öll saman í kór.

    Árni Hermann Reynisson skrifaði 21.4.2007 19:47


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings