sunnudagur, 22. apr 2007

Hvað kostar mjólkuróþol?

Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er alltaf að borða pillur. Venjulega er þetta gegn mjólkur­sykri. Mig skortir þetta inn­byggða kerfi til þess að melta mjólk. Þar sem mjólkur­sykri er bætt út í nánast öll mat­væli sem seld eru út úr búð á Íslandi er þetta ekki spurning um neitt annað en nauða­sjálfs­vörn.

Kostnaðurinn af þessu er ekkert grín. Mér er slétt sama þótt fólk sé alltaf að furða sig á þessu pillu­áti mínu. Mér finnst ergilegra að þessi fötlun kosti mig tugi þúsunda á ári. Svo hefur verðið á pillunum hækkað um u.þ.b. þúsund krónur á síðast­liðnum 2-3 árum. Þetta fer því ekki batnandi.


Þess vegna gerði ég smá til­raun og pantaði mér mjólkur­óþols­pillur frá Banda­ríkjunum. Þessar heita LactAid og eru mun sterkari og betri en þessi eina tegund sem fæst hér­lendis.

Ég átti alveg eins von á því að þurfa að standa í veseni til þess að reyna að koma þessu í gegnum tollinn, jafnvel að það gengi alls ekki. En þó var ég búinn að tala við bæði lækni og lyfja­fræðing um málið og báðir full­yrtu að mjólkur­óþols­pillur flokkuðust ekki sem lyf heldur fæðu­bóta­efni.

Hvernig gekk?


Jú, sendillinn frá UPS keyrði þetta í vinnuna til mín núna fyrir helgi. Þau hjá Lyfja­stofnun höfðu skoðað ofan í kassann og stimplað hann í lagi. Ég þurfti ekki að gera annað en strauja kortið mitt fyrir sköttunum. Erfiðara var það nú ekki.

Skattar og sendingar­kostnaður er nánast 60% af heildar­verðinu þegar ég er kominn með vöruna í hendurnar. Sennilega gæti ég náð því niður með ódýrari sendingar­aðferð og meira magni í einu. En svona lítur dæmið út:

4 LactAid kassar (keyrðir upp að dyrum): 8,948 kr.
þar af fluttningskostnaður og skattar: 5,217 kr.
60 pillur * 4 kassar = 240 pillur.
8,948 kr. / 240 = 37.3 kr. per pillu.
1 Lactasin dós í dæmigerðu íslensku apóteki: ca. 2800 kr.
2800 kr. / 100 pillur = 28 kr per pillu.
Teknar 3-5 pillur í einu * 28 kr = 112 kr. skammturinn.

Í praxís er það er sem sagt þrefallt dýrara að fá ekki amerískar pillur hrað­sendar heim að dyrum.

Eitthvað segir mér að álagingin hérna heima sé líklega ögn meiri en þörf er á.

8 ummææli við “Hvað kostar mjólkuróþol?”

  1. ég sé að rúmlega 60% af kostnaði við bandarísku pillurnar eru skattar og flutningsgjöld. Ég mæli með að þú látir senda þær heim til mín - og við fáum svo ferðalanga til að taka þá til Íslands... þá verður munurinn sirka sexfaldur.

    Hjalti skrifaði 23.4.2007 4:08

  2. þetta átti að vera 'tæplega' en ekki 'rúmlega'... nánar tiltekið 58%, hugarleikfimin brást mér um nokkur prósent.

    Hjalti skrifaði 23.4.2007 4:10

  3. Einu sinni þurfti ég að kaupa sveppalyf fyrir son minn - mycostatin. Fyrst fékk hann munnsvepp í Færeyjum og þurfti ég að kaupa lyfið þar. Þar kostaði það sem svarar 250 íslenskum krónum.
    Svo kom ég heim og þurfti að kaupa þetta lyf aftur. Hér kostaði það 3300 kr. Sama lyf frá sama framleiðanda.

    Marta skrifaði 23.4.2007 9:21

  4. Hjalti: Þetta er fallega boðið. Má vera að ég taki þennan kost þegar ég hef hámað í mig núverandi byrgðir.

    Verðmunurinn er gríðarlegur. Ég hef fengið þetta keypt fyrir mig áður af Bandarískri vinkonu minni og hún hefur venjulega hlegið að mér þegar ég hef ætlað að greiða henni kostnaðinn, svo lítill er hann.

    Að láta ljúga að sér að þetta sé vegna tolla og aðflutningsgjalda er svo fallegur kaupauki. Ef hann er ekki til staðar í Færeyjum þá þarf hann ekki að vera til staðar hér.

    Það gerir mig satt að segja mjög reiðan að hugsa um þetta. Ég hef í raun ekki annarra kosta völ en að kaupa þetta lyf. Ég get hæglega ímyndað mér að aðrir í svipuðum aðstæðum beri hærri kostnað en ég.

    Borgar skrifaði 23.4.2007 10:59

  5. Já kannast við þetta. Ég hef einmitt verið að panta mér prótein, kreatín og annað álíka dóp frá USA og það marg, marg borgar sig. Læt FedEx skutla þessu til mín og er kominn með dótið á svona 6 dögum margfalt ódýrara en hérna á Íslandi, jafnvel þótt ég fá 20% magnafslátt hjá birgja.

    Bergur skrifaði 11.5.2007 21:55

  6. Mjög áhugavert, sjálfur er ég líka svona pilluæta. Reyndar eru til fleiri tegundir en þessi eina, Lyfja er með Lactasin, Lyf og heilsa með annað og svo er Heilsuhúsið með þriðju tegundina.

    Kannski maður kíkji samt á að panta, þetta er þó nokkur kostnaður.

    JBJ skrifaði 18.5.2007 22:01

  7. Samþjöppunin á íslenskum lyfjamarkaði er náttúrulega orðin gríðarleg og í raun engin samkeppni á markaðnum.

    Hins vegar þarna með dæmið með Færeyjar, þá er það nú líklegra að ríkið sé að greiða niður lyfið þar en ekki hér heima, frekar en að álagningin sé svona gríðarleg.

    Beggi skrifaði 23.5.2007 15:12

  8. Það getur eiginlega ekki verið að þetta færeyska verð sé annað en niðurgreitt. Álagningin er vissulega slatti, en varla svona blóðug.

    Það er sennilegt að Færeyingar njóti þess þarna að vera hluti af mun stærra heilbrigðiskerfi (þ.e.a.s. því danska).

    Borgar skrifaði 28.5.2007 13:35


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar