föstudagur, 2. feb 2007

Uppfærsla, endurnýjun, aðrar fréttir

Ég var að fara upp um Wordpress útgáfu, í 2.1. Ég reyni að vera tilraunadýr fyrir svona hluti sjálfur áður en ég keyri uppfærslu á alla notendur. Það kom auðvitað í ljós að MySQL útgáfan sem ég var að keyra var frá því síðan á steinöld. Ég uppfærði hana í leiðinni.

Eitthvað smá þarf mögulega að laga til í þessu þema mínu. Mér sýnist flest þó vera að virka eðlilega. Ég skal játa það hér að ég dauðöfunda konuna af því að vera að keyra þróaðri útgáfu af þemanu en ég sjálfur. Hún er t.d. að senda út XHTML 1.1 með réttum headerum. En það situr svo gríðarlegt magn af gömlum hálf-brotnum færslum í ritsafninu mínu.

Svo eru Ingó og Helga komin yfir í Wordpress. Munið að uppfæra RSS straumana ykkar.


Annars er ég mest að reyna að ná áfallalaust í gegnum þessa viku. Þrátt fyrir að ég hefði verið byrjaður að gera ráðstafanir fyrir mörgum vikum síðan tókst heilsugæslunni að koma lyfjamálunum mínum í tómt klúður.

Þannig er mál með vexti að ég tek sérinnflutt skjaldkirtilshormón. Sá eini á landinu sem tek þetta tiltekna lyf. Eins og við er að búast þá er þetta nánast óyfirstíganlegt vesen í hvert skipti sem þarf að endurnýja lyfseðilinn. Öllum sem koma að því ferli finnst það hundleiðinlegt (þ.m.t. mér).

Reyndar er best að taka það fram að ég fékk algjörlega frábæra þjónustu í Lyf og heilsu, Eiðistorgi. Ég mun leitast við að fara með mín viðskipti þangað þrátt fyrir að það ekki beint í leiðinni.

Það hefur ekki komið fyrir áður, en í þetta skiptið var ég lyfjalaus í nokkra daga. Það er svolítið eins og að vera með slæma þynnku (samt bara eiginlega ekki neitt þannig). Þessi vika þess vegna verið samfelldur vondur mánudagur. Það sem hefur bjargað mér er að ég á mjög almennilega konu sem hefur gert allt til þess að létta mér lífið.


Á morgun byrjar heilsuátakið sem stóð til að ætti að hefjast með karateæfingu síðasta laugardag. Takmarkið er að ná af sér belgnum. Geta tekið fleiri en 3 armbeygjur án þess að vera farinn að hósta blóði.

Ástæðan fyrir því að þetta klikkaði svona illa hjá mér um síðustu helgi var sú að ég þurfti að versla mér nýja tölvu. Apple búðin gat umsvifalaust afhent mér nýja MacBook Pro. Allt annað þurfti þá að víkja. Það var auðvitað mjög mikilvægt að mynda sterk tengsl við gripinn strax. Þessi sérstöku tengsl nörds + tölvu + rafmagns.

2 ummææli við “Uppfærsla, endurnýjun, aðrar fréttir”

  1. Ég fékk Macbook Pro afhenta í vinnunni, sem vinnuvél. Mér finnst hún of þung og of stór og of klunnaleg. Ég bíð spenntur eftir að þeir verði við heimtufrekjunni í mér og afhendi mér Macbook vél í staðinn... ég hef rangt lyklaborð sem átyllu fyrir þeirri frekju og er feginn því.

    Herra BRE skrifaði 7.2.2007 23:46

  2. Ég verð að játa það, svona eftir á, að mér finnst þessi nýja pínu stór og þung. Svo er ég ekki alveg nógu sáttur við álið. Mér finnst það hitna og kólna of mikið. Plastið var þægilegra. Það var líka þægilegt að geta stungið vélinni í hvaða tösku sem var... :-)

    Á móti kemur reyndar skjáplássið, það er alveg þægilegt. Og...

    Borgar skrifaði 8.2.2007 0:24


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings