þriðjudagur, 16. jan 2007

Um þéranir og véranir

Það er hreint ótrúlegt að vel menntað fullorðið fólk, sem jafnvel er vant ritstörfum, skuli láta sér detta það í hug að reyna að þéranir og véranir. Og renna auðvitað beint á rassinn með það.

Íslenski hluti internetsins á nógu erfitt með nútíma málfars- og stafsetningarvillur (sbr. þær sem er að finna hér á síðunni) að við séum ekki að draga fram málfarsvillur frá þar síðustu öld líka.

Leyfið mér að vera fyrstur til þess að segja ykkur að þéranir eru dautt fyrirbæri sem þið kunnið ekki að nota: Ekki reyna að þéra!

Ég sárbæni ykkur! Það er of langt síðað þið voruð í menntaskóla. Þetta er ekkert nema pínlegt. Þetta gerir ykkur alls ekki fínni, það eina sem gerist er að ég fæ krampakenndan aumingjahroll þegar ég les klúðrið.

6 ummææli við “Um þéranir og véranir”

  1. Þér eruð bara aumingi! Muahahahahahaaaaa.......

    Lilja Sif skrifaði 17.1.2007 18:13

  2. Það er ekkert mál að "þéra" en hins vegar mjög erfitt að "yðra"!

    Bassastingurinn skrifaði 17.1.2007 23:10

  3. Áttu ekki við hvað þér finnst erfitt að iðrast? Ég hef nefnilega aldrei séð þig gera það heldur. (hahaha, ojj hvað ég er fyndinn).

    Borgar skrifaði 18.1.2007 10:47

  4. Já, þú ert svo sannarlega Karl Ágúst Úlfsson okkar kynslóðar!

    Bassastingurinn skrifaði 18.1.2007 21:57

  5. þér - yður - yður - yðar

    vér - oss - oss - vor

    Ekki svo hræðilegt að beygja.

    Hins vegar eru orð eins og kýr andskoti hvimleið, helst að fólk ruglist með eignarfallið í eintölu.

    Kýr - kú - kú - kýr

    Einar Steinn skrifaði 21.1.2007 20:01

  6. Hægan hægan! Þetta er ekki alveg svona einfalt. Þérunum fylgja líka eignarfornafnabeygingar (kyn, tala, fall).

    Það er auðvitað hægt að læra þessar reglur og, ef þær eru notaðar reglulega eða ef skrifað er af meðvitund, þá er sennilega hægt að brúka þær rétt.

    Vandamálið er að það fæst svo lítið fyrir að gera þetta rétt. En þú tapar svo miklu ef þú klikkar.

    Til þess að þetta sé allt komið er hér tafla yfir eignarfornöfnin:

    Kk. Kvk. Hk.
    Et. Nf. vor vor vort
    Et. Þf. vorn vora vort
    Et. Þgf. vorum vorri voru
    Et. Ef. vors vorrar vors
    Ft. Nf. vorir vorar vor
    Ft. Þf. vora vorar vor
    Ft. Þgf. vorum vorum vorum
    Ft. Ef. vorra vorra vorra

    Með fyrirvara um villur. Vinsamlegast leiðréttið mig ef um slíkar er að ræða.

    Borgar skrifaði 21.1.2007 20:54


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings