Lýsi
Ég byrjaði að háma í mig lýsi fyrir nokkrum dögum. Aðallega vegna þess hversu aðlaðandi Þorri Þorskur hefur gert þetta annars vinsæla fæðubótaefni. Þremur dögum seinna sit ég í vinnunni og velti því fyrir mér hvað valdi því að ég er svona hress.
Getur það virkilega verið að Lýsi hafi svona gríðarleg áhrif? Auðvitað er búið að vera að segja manni þetta alla ævi, en foreldrar eiga það til að vinna sér inn ótrúverðugleika með því að falla ítrekað í rökvillur.
Auðvitað er sá möguleiki fyrir hendi að þetta séu sýndaráhrif en í raun skiptir það mig kannski litlu máli svo lengi sem þau vara.

3 ummææli við “Lýsi”
Engin grein um lýsi á Wikipediu:
HTTP://is.wikipedia.org/wiki/Lýsi
!
Af lýsi er margt gott að segja. Mér líður alltaf ofsalega vel á lýsi:
HTTP://en.wikipedia.org/wiki/Omega-3_fatty_acid#Autism
Og líka:
"Omega-3s are definitively known to have membrane-enhancing capabilities in brain cells." - wikipedia
Af hverju ætti það ekki að virka? Gullinn fiskafjársjóður, namm.
krilli skrifaði 18.1.2007 15:32
I take lýsi because it tastes so good.
Sarah skrifaði 23.1.2007 22:50
Ég reif liðþófa í hné fyrir ekki svo löngu, og af því ég fékk ekki tíma í aðgerð strax, þá byrjaði ég að taka lýsi í staðinn... svo þegar komið var að aðgerðinni - þá þurfti ég bara ekkert á henni að halda! Allt lýsinu að þakka!
Kv. Vera ;-)
Vera skrifaði 22.5.2007 10:59