föstudagur, 3. nóv 2006

Árétting

Ég hef tekið eftir smá ugg í fólki vegna nýja Internet Explorer vafrans. Það er líklega skiljanlegt miðað við lætin og hávaðann í okkur sem störfum við vefgerð. Við erum kannski búin að rífast full mikið.

Fyrir ykkur sem notið ennþá Windows er það vert að taka það fram að IE7 er alls ekkert óhollur fyrir kerfið ykkar. Þrátt fyrir að við vefnördar séum að agnúast út í hann er hann samt töluvert betri en IE6. Hann er einfaldlega ennþá ófullkomnari en aðrir vafrar og því heldur hann aftur af þróun vefsins.

Ykkur er alveg óhætt að setja upp IE7 nú þegar uppfærslan er komin. Ég mæli samt sterklega með því að setja líka upp, og nota frekar Firefox eða Opera.

4 ummææli við “Árétting”

  1. já, IE7 var ekki að fara eins illa með vefsíðurnar í vinnunni og ég hélt:) Hann er ágætur greyið...

    ..flott síða, by the way!

    Einar Kristján skrifaði 3.11.2006 19:47

  2. Ég er að rembast við að hafa ekki skoðanir á þessu öllu núna. Ég er búinn að hafa svo hátt undanfarið að allir í kringum mig óttast heimsendi leyfi þeir Micorsoft Update að keyra IE7 inn. :-)

    Það eiga samt allir að nota Firefox, eða Opera, og Hananú!

    Ég þakka hrósið. Ég er alltaf ánægður að heyra fallega talað um síðuna mína og það er auðvitað bónus ef það kemur frá vefurum. :-)

    Borgar skrifaði 5.11.2006 22:02

  3. Þú ert alltaf lang flottastur Borgar minn!

    Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég las þessa færslu þína var "hvurn djöfulinn er hann nú að gera, að sleppa þessu fína 'scare-moment' til að losa vænan hóp af fólki úr klónum á Microsoft stöðnuninni... :-)

    En svo ákvað ég, eins og svo oft núorðið, að sleppa því að skrifa nöldurkomment, og fór í staðinn að gera eitthvað skemmtilegt eins og að lesa elegant forritskóða eftir ókunnuga!

    Már skrifaði 7.11.2006 1:37

  4. Í fúlustu alvöru þá er það alveg rétt að þetta er gott tækifæri til þess að losna við svolítið af IE.

    Ég trúi því hins vegar einlægt að við sem erum tæknimenn á þessu sviði höfum ákveðna ábyrgð gagnvart þeim sem ekki eru jafn öruggir og við. Ennfremur þoli ég illa forræðishyggju og tel það rétt notanda að velja sjálfir hvaða vafra þeir nota. Þetta á oft ekki vel saman, en ég er nú bara ekki betur gerður en þetta. :-(

    Við getum vísað á betri lausnir, sett fordæmi, og reynt að leiðbeina - en við verðum líka að passa hvað við erum að segja og koma fram við "notendur" af virðingu.

    Anyway, talandi um annarra manna töffaraskap. Ég var eitthvað byrjaður að reyna að endursmíða Frabtastic án jQuery. Það fór ekki betur en að ég kominn á þá skoðun að máske sé tíma mínum betur varið í að kanna jQuery. :-)

    Borgar skrifaði 7.11.2006 15:02


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings