mánudagur, 16. okt 2006

Ný síða (eða þannig)

Í tilefni af því að ég er nú (þeas. í dag) orðinn svo gamall sem af grönum má sjá, nánar til tekið þrjátíu-og-eins, eða kominn á fertugsaldurinn eins og margir halda að sé fyndið að segja… er ég búinn að fá mér örlítið virðulegri heimasíðu.

Ég á reyndar eftir að laga nokkra hluti ennþá: Internet Explorer veit ekkert hvað hann á að gera við þetta, einhverjir linkar eru ekki réttir, tungumál eru í klessu (hvar er fína íslenskan mín?), ég er ósáttur við leitarboxið í hausnum, eitthvað þesslegt. Ég laga þetta þegar ég hef tíma. Annars er ég að verða frekar sáttur við vefunina á þessu.

Hugmyndin með útlitið var að gera eitthvað látlaust og hvítt. Þetta virkar reyndar lang best í mac, því það munar töluverðu á leturmeðhöndlun í mac og á öðrum kerfum. Vefunin á þessu er þannig að því betri stuðningur við CSS, því meira færðu. Svo best er að horfa á þetta í Firefox á Mac og verst er að nota IE6 á Windows. Allt er optímerað fyrir textavafra eins og Lynx, skjálesara, prentun, o.s.frv.

Grindin á skjalinu er einhverskonar samsuða af aðferðafræðinni úr vinnunni, kenningum stóru CSS hetjanna, og einhverrar sérvisku í mér. Ég vildi t.d. að það væri hægt að smíða híarkíst efnisyfirlit (document outline) af skjalinu út frá því hvernig titla (heading) tög eru notuð.

Þessi glæsilega mynd af mér sem ég hef notað í hausinn var tekin í vinnunni af Sigurjóni og er sennilega skásta mynd sem af mér hefur verið tekin. Sú fyrsta þar sem ég er ekki með lokuð augu og opinn munn.

Ég smellti einnig inn Wordpress viðbót sem ætti að fara sem víðast, það er viðmót á stillingar.is græjuna hans Más. Í framtíðinni geta þá aldraðir foreldrar mínir lesið síðuna mína gleraugnalausir (grínlaust).

Ég tek kannski nánari krufningu á þessu á ensku þegar ég gef út Wordpress theme fælana fyrir þetta. Læt þetta þó duga í bili.

8 ummææli við “Ný síða (eða þannig)”

  1. Til hamingju með afmælið kallinn!
    Á að halda upp á áfangann?

    Ingó skrifaði 16.10.2006 12:14

  2. Klessufínt!

    Mangíu, mangíu.

    krilli skrifaði 16.10.2006 22:59

  3. Skál. Til hamingju með daginn og vefsíðuna. Frábært að sjá svona glæsilega ofinn vef á persónulegri síðu, meir meir af þessu.

    Árni Hermann skrifaði 16.10.2006 23:03

  4. Til hamingju litli strákurinn minn. :-)

    Smekklega gerð síða, eins og við var að búast. Ræðum gildrur við tækifæri!

    Herra BRE skrifaði 17.10.2006 7:02

  5. Þessi síða er snilld, þú ert snillingur og ég er snillingur...

    Sigurjón skrifaði 17.10.2006 11:04

  6. Happy birthday Borgar.

    Love the new look. It's very... authoritative.

    Annie Rhiannon skrifaði 17.10.2006 13:05

  7. I didn't already comment? The new page is beautiful.

    Sarah skrifaði 24.10.2006 11:01

  8. Hurru, ég þarf að plata þig til að bæta stöðluðu Stillingar.is táknmyndinni fremst í linkinn "Use my settings"...

    Ég sný upp á hendurnar á þér næst þegar ég heimti þig úr Gl^H^HHelju. ;-)

    Már skrifaði 7.11.2006 1:40


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings