föstudagur, 8. sep 2006

Rantur um kerfisstjórnun

Þar sem ég er búinn að vera veikur í ca. heila viku og er alveg að verða viti mínu fjær af leiðindum er ég, af mikilli örvæntingu, farinn að reyna að finna mér eitthvað að gera sem ég ræð við.

Eitt að því sem ég fattaði að ég gat gert var að uppfæra serverinn minn. Ég er oft latur við að halda hlutum við, og kemst líklega eingöngu upp með það vegna þess að ég er afskaplega vænisjúkur þegar kemur að kerfismálum.

Vinnan er mestmegnis færibandavinna þó er ekki treysta sjálfvirkni til þess að gera. En ég er sumsé búinn að uppfæra allt og, það sem meira er, herða spamvarnir til muna.

Í kjölfarið er ég búinn að vera að horfa á loggana rúlla yfir skjáinn í dag til þess að staðfesta að allt hafi farið vel. Ég trúi því varla hvað þetta gekk vel. Allt virðist virka fullkomlega og það er ekki ruslpóstur sjáanlegur.

Lengi lifi kerfisfasismi!

Ein ummæli við “Rantur um kerfisstjórnun”

  1. Lengi lifi Borgar.

    Og á sjötta degi veikinda skapaði Hann vélina eftir sinni mynd.

    krilli skrifaði 8.9.2006 22:13


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar