What I did on my summer holiday
Annað sumarið í röð var planið að taka tjaldferð um austurland, en vegna þess hvað veðrið var búið að vera slæmt þetta sumar ákváðum við að fara út - bara eitthvert út
Íslenskt veðurfar er glatað, en það vissu það svosem allir. Svo þetta endaði með skoðunarferð um Stokkhólm. Ég tók engar myndir, hafði slökkt á símanum megnið af ferðinni, og þóttist bara frekar áhyggjulaus.
Reyndar héldu heimamenn okkur hjúin vera ein af sér. Það var frekar undarlegt að þurfa að skella á sig myndavélum og höttum til þess að vera látin óáreitt. Við fengum annars tilboð um betri símaþjónustu, boð um inngöngu í Amnesty, og tilkynningar um mótmæli gegn Ísraelsríki.
Annars var ferðin öndvegis. Gott veður, ísát, og rölt um miðborgina reyndist akkúrat það sem þurfti til þess að finnast maður vera í smá fríi.
Já, og ég get hiklaust mælt með rússneska veitingahúsinu á Stora Nygatan, Tsarskij Sad.

4 ummææli við “What I did on my summer holiday”
Velkominn heim. Myndir?
krilli skrifaði 24.7.2006 12:42
Takk.
Þrátt fyrir að taka tekið með okkur tvær myndavélar, auka minniskort og hvaðeina... tókum við engar myndir. :-|
Borgar skrifaði 24.7.2006 16:41
Iss piss! Vonlausir túrhestar það...
Bassastingurinn skrifaði 25.7.2006 18:25
TEKKENMÓT!!!
Lína frekja skrifaði 2.8.2006 13:17