Ja hérna hér
Um daginn keypti ég mér hinn margumtalaða T magnara. Mest af forvitni og vöntun á góðu föndur verkefni.
Ég er búinn að rífa innvolsið úr honum og í hádeginu fékk ég Ingó með mér í að kaupa flest það sem þarf til þess að skella honum í nýtt box.
Í einhverju kasti ákvað ég áðan að skella honum í samband við nýja spennubreytinn og hátalara til þess að athuga hvort að ég, amatörinn, heyrði raunverulega einhvern mun.
Ég sit hérna steinrunninn og gapandi.
Ég veit ekki alveg hvernig ég get fullkomlega útskýrt það hvað ég er að upplifa hérna: Þann sterka skilning á því að góður magnari skipti gríðarlegu máli, hvernig ég skynja það mjög sterkt hvað veiki hlekkurinn í keðjunni "iPod > T-amp > Hátalarar" eru greinilega hátalararnir.
Þið vitið hvernig svona græju nördar sem eiga fullkomnar stereogræjur eiga samt aldrei nema 4 diska (veljið úr Pink Floyd, Rage Against the Machine, Dreamtheatre, Yes, eða Fleetwood Mac…)? Þið þekkið týpuna.
Ég var rétt í þessu að átta mig á því að það er einfaldlega vegna þess að léleg stúdíóvinna heyrist mjög greinilega í gegnum almennilegan magnara.
Það er mér mikill léttir að mitt eigið dót er ekki algjörlega vanskapað í gegnum þetta.

11 ummææli við “Ja hérna hér”
ARFG spenntur
Kem í hlustiheimsókn!1 Prófum svo að smíða nýjan spennubreyti (for teh science), það gerir hljóðið aðeins meira úmf held ég að ég hafi lesið ...
Tekurðu svo ekki myndir?
Og já, ég sagði þér að þú værir klár að mastera. Alltaf með pottþétt sánd! Alltaf!
Eins og alvöru gentlemann. Að sjálfsögðu með óaðfinnanleg hljómgæði.
Krilli skrifaði 21.6.2006 19:42
Nei bíddu já, við annan lestur: ég sé þarna að þú ert með nýjan spennubreyti?
Krilli skrifaði 21.6.2006 19:43
Ég fjárfesti í stillanlegum spennubreyti. Ingó vill að sjálfsögðu að smíða spennubreyti í þetta. Ég er ekki viss um að það muni raunverulega klárast (vegna þess að við erum jú eins og við erum) svo að ég stefni á að hafa þetta innan þannig ramma að ég ráði við að klára verkið hjálparlaust.
Ég er með 12v á ca. 2 amper. Mér skilst að það sé allt í lagi að setja í þetta allt að 13.5v en spennubreytirinn fer niður um amper við það og mig grunar að maður vilji alveg hafa 3 amper þegar maður er að keyra græjuna á "itmmaks skramáh".
Ég áttaði mig á því í gærkvöldi reyndar að ég þarf að fá mér tvö stykki tengi í viðbót og þá er ég gó. Stefni á því að redda þeim í hádeginu. Ég ætla að setja græjuna saman um helgina.
Ef allt fer vel ætla ég að fara með þetta og prufa á mónitorunum (og eyrunum) hans Úlfars. Það ætti að verða lokaúrskurður á þetta.
Borgar skrifaði 22.6.2006 11:04
Það er samt svo margt í þessu með "gott sánd".
T-amp gaurinn skilst mér að sé með frekar sterkan topp, allt að því ýktan. Þá gæti ég trúað því að MP3 bjögun eða slök stúdíóvinna heyrist berlega, því toppurinn er eitthvað sem virðist erfitt að ná fallegum, og eitt af fyrstu verkum í MP3 kóðun er að skemmileggja toppinn skilst mér :)
Svo eru til græjur sem hegða sér allt öðruvísi, með skýra og fagra miðju, gott trukk n' pöns og smávegis fallega bjögun sáldraða yfir allt tíðninsviðið. Það telst "góður magnari" alveg eins og T-gaurinn, en mig grunar að miklu breiðari katalógur hljómi vel í því, af því að hljóðið er þá svo ... jömmí. Drift, dugnaður og hlýja, namminamm. Sjarmi lampagræja gæti legið þarna.
Misjamt og flókið!
Það er svo auðvelt að missa sig í tugþúsundakróna græjuinnkaup, ef markmiðið er BESTA SÁND. Mitt markmið núna er að spara og svindla og ná fram ÓDÝRASTA SÁNDI. Þar er T-magnzör held ég alveg möst. Frétti líka að þessir hátalarar væru asnalega góðir miðað við 50 $ : HTTP://www.bestbuy.com/site/olspage.jsp?skuId=7705307&type=product&productCategoryId=cat03043&id=1138085354138
Þessu tengt, þá sé ég t.d. milt eftir því að hafa keypt mér Grado tól í dýrari kantinum. Hefði átt að kaupa næstódýrasta módelið og fá 90% af sándinnu fyrir þriðjung þess sem þriðja dýrasta týpan kostaði mig. Hefði svo getað keypt mér fleiri leikföng fyrir mismuninn.
Krilli skrifaði 22.6.2006 13:59
Grunar BTW að hinn hagsýni Borgar hafi vitað þessa sparnaðarleið all along :)
Krilli skrifaði 22.6.2006 14:00
Um hina supposedly-dásamlegu fimmtíu dala hátalara:
HTTP://www.diyaudio.com/forums/showthread.php?s=&threadid=81277
Krilli skrifaði 22.6.2006 14:07
Her eru thessi italsku Tripath kitt:
HTTP://www.audiodigit.com/index.php?section=76
Thad var samanburdur a svona Tripath-mognurum a tnt-audio.com, mig minnir ad thad hafi verid thessi Autocostruire 2020 sem kom best ut thar.
100W utgafurnar eiga svo ad vera betri, med nyrri kubb med betra flavor, auk fleiri watta.
Er ad spa i ad smida svona Autocostruire 2020 fljotlega.
Krilli skrifaði 25.6.2006 21:10
Umfjollunin a tnt-audio sem eg nefndi:
HTTP://www.tnt-audio.com/ampli/tripath_amps_e.html
Her er annar sem mer list reyndar vel a lika:
HTTP://www.tnt-audio.com/ampli/amp-6_e.html
Minnir ad hann se odyrastur. Thad eru bara svo oged flottar air-core spolur med thessum italska, jammi jammi.
Krilli skrifaði 25.6.2006 21:15
What size power supply do I need?
At least 12 volts, 1.5 Amps. It is best not to run the Sonic Impact over 13V, and a heatsink is a good idea at that voltage.
HTTP://www.diyaudio.com/wiki/index.php?page=Class+D+Amplification
Datt í hug að þú vildir bakka kannski niður í 12V þegar ég sá þetta :)
krilli skrifaði 4.7.2006 15:08
Urg, töff:
HTTP://www.flickr.com/photos/47642593@N00/161872750/in/photostream/
Krilli skrifaði 25.7.2006 11:35
Herðu ég rakst á þessa síðu þegar ég leitaði að modd chipum á google... ég var að spá hvort að þú vitir hvar ég geti fengið svona hér á landi? endilega sendu mér mail :)
Brynjar skrifaði 23.3.2007 18:45