Hvítasunna vel nýtt
Aldrei þessu vant er ég búinn að vera frekar hress þessa helgi. Venjan er að ég liggi í leti og reyni að leiða hjá mér óunnin heimilisstörf. Það var ekki þessa helgi.
Ég skrallaði með Bassastingnum á föstudagskvöld. Móðgaði einhverjar fullar stelpur sem reyndu að tala við mig þegar ég nennti ekkert að tala á móti.
Laugardagurinn fór í rúnt um Biskupstungur. Þar á móðurbróðir minn hús sem hann er að breyta í paradísarvillu. Svei mér ef honum mun ekki bara takast það.
Sunnudagurinn var helgaður heimilisstörfum að mestu. Við hjúin fórum í göngutúr, og rúntuðum á bílasölur og í búð. Afmæli um kvöldið.
Ég er svo búinn að vera að nördast í dag. Ég gat ekki setið á mér að fara að fikta í tunebox vélinni. Ég er að bæta við Podcast og einhverju öðru dóti þarna. Spennandi.
