Eydís

Ég get ekki hætt að hugsa um konuna sem keyrði framhjá mér á
Klapparstígnum um daginn. Það var eins og hún væri að keyra beint út úr tímavél.
- Perm og strípur
- Hvít Mazda (eða eitthvað álíka)
- Of stór hvít kaðlapeysa og "scrunchy"
- Drasl í bílnum
- Barn í bílstól aftur í
- Logandi sígaretta í munnvikinu
Líkast til mun ég aldrei komast að því hvað hún heitir en ég hef ákveðið að í minningunni skuli hún heita Eydís.

8 ummææli við “Eydís”
Á leið úr "grill"-sjoppu-djobbinu í skúringarnar.
Krilli skrifaði 7.6.2006 23:40
mér finnst þær oft heita íris... kannski er aukavinnan á ljósastofu? merkilegt að hún hafi verið á klapparstíngnum. ég sé þær oftast í úthverfunum þessar elskur.
helga þórey skrifaði 15.6.2006 16:04
Don't be dissin' the scrunchy!!
Sarah skrifaði 15.6.2006 22:49
1) Mér finnst ömurlegt að þurfa að útskýra brandarann en hingað erum við komin: Eydís vísar til þess hvernig Íslendingar segja "80's".
2) Ég er ekkert að dissa scrunchy. Mér finnast þær kúl og bíð spenntur eftir því að þær detti aftur í tísku.
Borgar skrifaði 16.6.2006 9:16
Með hreinustu sál og óflekkuðustu tilfinningar sem völ er á, bendi ég á að Sarah væri frekar höt í blóma-stretsbuxum og scrunchy.
Borgar sömuleiðis í KENZO jakkafötum, í J. M. Jarré POWER SYNTH pósu + disk af beikoni.
Match made in hevin
Krilli skrifaði 16.6.2006 10:07
"1) Mér finnst ömurlegt að þurfa að útskýra brandarann en hingað erum við komin: Eydís vísar til þess hvernig Íslendingar segja "80's"."
Ég held að vandinn liggi í að maður lesi bloggfærslur sjaldnast upphátt, sem í mínu tilviki er nauðsynlegt til að ég átti mig á orðaleiknum. ;-)
Ingó skrifaði 10.7.2006 10:10
Fashion-jargon-unconscious-Ingó veit ekki hvað "scrunchy" er, þó mig gruni að ég eigi ekki í vandræðum með smá útskýringu.
Ingó skrifaði 10.7.2006 10:13
Ég setti inn mynd af scrunchy með færslunni. Ég þekki ekki orðið yfir þetta fyrirbæri á móðurmálinu, en þetta er sumsé hárteygja í efnismikilli tauhulsu sem krumpast saman þegar teygjan er spennt um hárið.
Borgar skrifaði 10.7.2006 10:24