Nýtt dót
Ég fann mér OS X dashboard widget sem gefur mér möguleikan á því að skrifa færslu beint inn af skjáborðinu mínu. Eini gallinn er að nú þarf ég að drullast til þess að færa mig yfir í UTF-8 því að þetta ræður ekki við ISO-8859-1 charaktersettið sem ég er að nota.
Það hefur svoldið truflað mig hvað bakenda viðmótið á Wordpress er letjandi. Viðmótið á mínu eigin kerfi er nefnilega mun aðgengilegra og skrifhvetjandi.
Ég er að athuga möguleika á því að færa meira af virkni úr bakendanum og yfir á framendann. það er reynar svo mikið að öðrum hlutum að gera hjá mér núna að ég efast stórlega að ég geri neitt þessháttar á næstunni - en það verður allavega þægilegt að vera kominn með fljótlega leið til þess að skrifa inn á vefinn sinn. :-)
