sunnudagur, 21. maí 2006

Helgin (yfirlit)

Ég er búinn að eyða helginni í að pínpússa ýmsa hluti sem hafa verið að angra mig.

Þetta byrjaði á því að ég svissaði öllum control tökkunum á iBókinni minni svo ég gæti vélritað. Bjarni benti mér á að þetta væri auðvelt. Svo nú get ég vélritað aftur! Húrra!

Næst á dagskrá var að laga terminalinn fyrir OS X, en hann kemur asnalegur úr kassanum. Sem betur fer er auðvelt að breyta page-up/page-down og del vs. backspace ruglinu í eitthvað sem meikar sens. Reyndar er það yfirleitt óútreiknanlegt hvenær backspace takkinn á Mac er backspace og hvenær hann er delete.

Keypti mér annars Textmate. Það mun vera í annað skipti sem ég kaupi mér forrit. Mér sýnist þetta vera alveg peningana virði. Ég stal hvort sem er flestum öðrum forritum sem ég er að keyra.

Ég fór einnig í gegnum backup málin á vefþjóninum og náði að minnka backup fælinn um næstum 90%. Þetta er leiðindaverk sem ég hef látið bíða allt of lengi.

Annað sem er í fréttum er að ég er að teikna nýtt útlit á þessa síðu og ég er gjörsamlega farinn í bakinu (ok, ekki gjörsamlega en þetta er samt vont). Sjónvarpið okkar er líka dautt. Sem er óheppilegt því að ég get auðvitað ekki komið því eitt né neitt ef ég get ekki lift því. :-)

Það bauð mér enginn í Eurovisionpartí í ár (sem verður að teljast svolítil lækkun frá þessum 7-8 í fyrra). Er það merki þess að ég eigi ekki lengur neina vini eða að vinir mínir hafi ekki nennt að horfa á keppnina?

10 ummææli við “Helgin (yfirlit)”

  1. Hmm, hvenær er backspace takkinn delete? Er ekki að rengja þig, er bara forvitinn.

    Annars er fn+backspace = delete, BTW

    Krilli skrifaði 21.5.2006 19:13

  2. vegna þess að við erum orðin ÞRÍTUG!!!

    Helga Þórey skrifaði 22.5.2006 20:52

  3. Krilli: Nú er ég ekki fyrr framan mac. Þegar þú segir fn. ertu þá að meina function takkann sem ég nota til þess að breyta örvum í pgup/pgdown eða eitthvað eins og slaufa eða control?

    Þetta er annars sjaldnast algjör umbreyting. Stundum, eins og td. í Mail, notar maður backspace til þess að eyða bréfum. Það er svosem alveg eðlileg hegðun - en ég þarf að hugsa fyrst.

    Þetta er allt alveg dót sem meikar sens og mun venjast vel. Enn sem komið er þarf ég bara alltaf að vera að stoppa til þess að hugsa. Það segir væntanlega sitt að venjulega er það fyrsta sem mér dettur í hug það rétta til þess að framkvæma það sem ég vil. :-)

    Helga: Þýðir þetta að ég get bara gefist upp strax? Lagst niður og beðið eftir dauða mínum?

    Borgar skrifaði 23.5.2006 8:56

  4. Þú verður farinn að eyða pósti eins og stórstjarna innan skamms.

    Fn takkinn sem ég nefndi heitir bara "fn" hjá mér og er neðst til hægri.

    Búinn að [Epli: System Preferences: Keyboard & Mouse: Keyboard: Use the F1-F12 keys to control software features]? Mæli með því.

    Krilli skrifaði 23.5.2006 9:26

  5. Hitt hægri!

    Hann er 'vinstra' megin, á ég við.

    Krilli skrifaði 23.5.2006 14:26

  6. nei manstu ekki þetta með að enginn býður í partý, aðeins matarboð...?
    við erum komin á dannaða aldurinn, jæks...

    Helga Þórey skrifaði 23.5.2006 17:53

  7. Flestir af hinum eru bara búnir að fatta að matarboðin eru skemmtilegri, Helga :)

    Þess utan eru gjarnan opin partý-hús með alvöru blikkandi ljósum og reyk í miðbænum, en ég hef ekki ennþá séð stað þar sem maður getur gengið inn í líflegt matarboð. Það væri kannski gaman stundum. Ef venjulegur veitingastaður er eins og blokk með sín aðskildu borð, þá langar mig á kommúnuveitingastað.

    Krilli skrifaði 23.5.2006 18:18

  8. We just gots to have our own party! We have Singstar, plenty of alcohol to spare, and neighbours we need to get revenge on for keeping us awake so many nights!

    Sarah skrifaði 23.5.2006 22:24

  9. krilli: heima hjá mér er alltaf matarboð, og þú mátt endilega koma í mat hjá okkur stúlkunum (þetta gildir reyndar um undrapabba og frú líka). eftir mat má fara út í garð og chilla í hengirúminu, leggjast á sólpallinn eða fara í hakkí á bílastæðinu. að þessu loknu má stinga sér til sunds í tjörninni (ég mæli ekki með því) eða setjast inn og spila popppunktsspilið við undirritaða.

    Helga Þórey skrifaði 26.5.2006 17:04

  10. krilli: heima hjá mér er alltaf matarboð, og þú mátt endilega koma í grill hjá okkur stúlkunum (þetta gildir reyndar um undrapabba og frú líka). eftir mat má fara út í garð og chilla í hengirúminu, leggjast á sólpallinn eða fara í hakkí á bílastæðinu. að þessu loknu má stinga sér til sunds í tjörninni (ég mæli ekki með því) eða setjast inn og spila popppunktsspilið við undirritaða.

    Helga Þórey skrifaði 26.5.2006 17:05


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings