Heimasíðugerð
Mikið er ég búinn að vera duglegur að vinna í heimasíðum undanfarið.
Ég var að gera lagfæringar á Hugsanda í dag. Ég fór eins langt og ég komst með þrifnað á svarkerfinu. Verst að Textpattern er algjörlega þroskaheft á því sviði.
Mér sýnist þeir ætla að laga akkúrat þetta atriði sem ég var að berjast við áðan í næstu útgáfu - verst að ég er búinn að hakka kerfið svo mikið að ég get ekki uppfært með góðu. Þetta var m.a. til þess að fá það til þess að láta almennilega með íslensku, og geta hluti eins og höfundaprófíla.
- -
Ég var búinn að smíða síðu handa litlu sys sem ég var samt ekki búinn að afhenda henni. Nú þarf ég að gera það uppá nýtt í Wordpress af því að ég held að ég sé ekkert að afhenda henni blogging kerfi sem ég er hættur að styðja.
Ég var búinn að skrifa blog.central.is spider til þess að reyna að heimta eitthvað af færslunum hennar aftur úr því skrani. Það kerfi býður ekki uppá nein archive svo að það sem fólk skrifar þar á vefinn hverfur einfaldlega eftir x margar færslur (það er víst hægt að kaupa þetta sem aukahlut en þrátt fyrir að fólk sé rukkað gerist ekki neitt).
Svo virðast þeir blog.central.is félagar vera að þvinga fólk inn á minnsirkus.is. Þar virðist vera boðið upp á archive, svo það má vera að maður nái að kreista þessi gögn út eftir allt saman?
- -
Svo er ég búinn að setja upp síðu fyrir hana Söru mína. Sennilega eina mest pimpin' síðu á öllu internetinu. Sem er svoldið fyndið vegna þess að hvorugt okkar er mjög pimpin'. Okkur svipar sennilega meira til umrenninga en glanstýpa. Síðan hennar er reyndar frekar tómleg ennþá en það lagast væntanlega um leið og hún kemst að í heimilistölvunni. :-)

Ein ummæli við “Heimasíðugerð”
hérna hér - síðan þín er skrýtin í makka. en kannski vissir þú það minn kæri. ég sé amk ekki login og engan titil. nema að þú sért að laga. kannski það.
helga þórey skrifaði 21.4.2006 22:36