Yðar einlægur
Þegar fólk skrifar undir bréfin sín segir það sitt á hvað; kær kveðja, bestu kveðjur, kveðjur, kveðja…
Fleirtala og eintala eru notaðar eftir einhverri máltilfinningu sem mig virðst skorta. Ég hef þó aldrei heyrt neinn nota "besta kveðja". Hverju sætir?

5 ummææli við “Yðar einlægur”
"Besta kveðja" hljómar eitthvað svo ULTIMATE. Um leið og maður er farinn að tjá sig með einhverjum ULTIMATE tilfinningum virkar maður svo manískur og scary.
krilli skrifaði 1.4.2006 2:20
Fyrir utan hrokann sem felst í yfirlýsingunni "BESTU" kveðjur...! Þykist þetta fólk búa yfir betri kveðjum en nokkur annar í sögu góðra kveðja?!?
kv
Bassastingurinn skrifaði 1.4.2006 16:26
Ég held einfaldlega að "bestu-kveðjur" fólk telji kveðjur sínar best stilltar þannig af að þær séu í samræmi við nýjustu þróun í kveðjuvísindum hverju sinni - þ.e. að vísað sé til bestu kveðja sem fundnar hafa verið upp fram að því.
krilli skrifaði 1.4.2006 16:49
Voðalega eruð þið miklir orðhenglar, hafið þið ekkert betra að gera?
Ég held að þeir sem skrifi kær kveðja, kærar kveðjur, bestu kveðjur, með góðri kveðju eða besta kveðja vilji vera hlýlegri en þeir sem skrifa bara kveðja eða það sem ég þoli ekki, kv.
Djöfull er annars orðið kveðja asnalegt.
Lína skrifaði 6.4.2006 13:40
Afhverju þú heyrir aldrei fólk segja besta kveðja þegar það skrifar undir bréf? Hmm... kannski af því að þú ert ekki með upplestrar fítusinn á tölvupósttforritinu þínu aktíveraðan? ;)
Unnur skrifaði 9.4.2006 15:43