Súrir mannspungar
Þegar ég verð fyrsti raðmorðingi Íslands ætla ég að vera þjóðlegur. Ég var að hugsa um að búa til þorramat úr fórnarlömbum mínum. Til dæmis hangimannakjöt og barnablóðmör.
Þegar ég verð fyrsti raðmorðingi Íslands ætla ég að vera þjóðlegur. Ég var að hugsa um að búa til þorramat úr fórnarlömbum mínum. Til dæmis hangimannakjöt og barnablóðmör.
24 ummææli við “Súrir mannspungar”
Er þá besta leiðin til að halda sér á lífi að borða mikið af suður-evrópsku kryddi í öll mál?
Bre skrifaði 28.3.2006 12:27
Besta leiðin til þess að halda sér á lífi er að borða hollan mat, hreyfa sig reglulega, forðast óþarfa streitu, og horfa til beggja átta áður en maður fer yfir götuna.
Suður-evrópskt krydd er eflaust ágætt til síns brúks en ég mundi ekki borða það eintómt.
Borgar skrifaði 28.3.2006 12:32
Það fer nú alveg eftir því hversu stórtækur raðmorðingi þú ætlar að vera. Ef þú verður svo afkastamikill að taka framúr velferðarsjúkdómum og umferð og verða helsta dánarorsök Íslendinga, þá gæti nú skipt sköpum að smakkast ekki eins og þorramatur.
Bre skrifaði 28.3.2006 16:42
Ég held að túrmerik-Bjarnalifrarpylsa með chilantro og ögn af kóríander sé einmitt málið, namminamm
krilli skrifaði 28.3.2006 18:21
Fyrsti raðmorðingi Íslands hvað? Axlar-Björn ber nú aldeilis þann titil.
Urður skrifaði 28.3.2006 19:32
Nibbs, Axlar-Björn er landsins þekktasti fjöldamorðingi. En hann er ekki raðmorðingi, þar er jú munur á.
Borgar skrifaði 28.3.2006 19:49
Ha, var hann ekki einmitt raðmorðingi? Var hann ekki að drepa yfir nokkura ára tímabil, og jafnvel haldið verndarhendi yfir honum af einhverjum stórbændum? Jack The Ripper Íslands barasta!
Nonni skrifaði 29.3.2006 10:29
Ég held ég verði barasta að taka undir með Nonna og Urði...
sjá: HTTP://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1987
Erum við ekki samt vinir, Séra Borgzor, geimprestur?
Bassastingurinn skrifaði 29.3.2006 13:21
Vísindavefurinn kallar hann fjöldamorðingja en ekki raðmorðingja.
Eins og ég skil þetta þá er það víst þannig að til þess að einhver flokkist sem raðmorðingi þarf hann að hafa ákveðið andlegt "prófæl". Fjöldamorðingi er hins vegar bara einhver sem drepur fleiri en einn.
Raðmorðingar eru sumsé fjöldamorðingar en fjöldamorðingjar eru ekki endilega raðmorðingjar. Ég fæ ekki betur séð en að Axlar-Björn hafi verið að drepa menn aðallega til þess að ræna þá. Hvernig gerir það hann að raðmorðingja?
Ekki veit ég til þess að nokkur maður hafi framkvæmt sálfræðimat á Axlar-Birni, en ef einhver veit um slíkt þá er ég áhugasamur um að lesa það.
Til þess að ég samþykki að karlinn hafi verið raðmorðingi þurfa að vera aðeins sterkari rök en að hann hafi drepið marga yfir langt tímabil.
Borgar skrifaði 29.3.2006 14:45
Ú, ú, ú...
Hér er meiri fróðleikur um málið:
HTTP://en.wikipedia.org/wiki/Serial_killer
Huxanlega er engin ein niðurstaða í þessu sem hægt væri að meitla í stein...
Bassastingur skrifaði 29.3.2006 15:21
cilantro og kóríander er það sama
helga þórey skrifaði 30.3.2006 13:59
Haha, skarplega athugað.
Það er reyndar alls ekki sama kryddið, en sama planta, og sama helvítis óbragðið! :-P
Borgar skrifaði 30.3.2006 14:04
It is a soft, hairless, foetid plant growing to 50 cm tall.
krilli skrifaði 30.3.2006 21:26
Soft, hairless, foetid...mmm!
It's interesting (& kinda funny) that Borgar can joke about eating pickled human testicles, but is overwhelmed with disgust at the mention of coriander!
Coriander is one of those flavours that brings out strong reactions in people: people don't merely dislike it, they despise it! It's thought to be a genetic trait, but this hasn't been fully researched.
I know there are a few chemicals that some people can taste and others can't, and that this ability or inability is known to be genetically determined:
HTTP://www.usoe.k12.ut.us/curr/science/core/plans/bio/taste.html
With most commonly-disliked foods that I like (eg olives, broccoli, strong cheeses, spinach), I'll still feel I have an idea of why other people don't like them. But I really can't imagine why anyone would find coriander particularly offensive -to me it tastes and smells fresh and tangy, I certainly can't understand why anyone would describe it as foetid!
Perhaps there's some foul-tasting chemical in it that I don't have the ability to taste?
Sarah skrifaði 31.3.2006 11:15
Það er auðvitað ekkert nema barnaskapur að borða ekki kóríander - ég man að mér þótti bragðið og lyktin af því ákaflega fráhrindandi þegar ég var enn yngri og vitlausari en ég er núna.
Rétt eins og ég er það ungur og vitlaus akkúrat núna að ég borða öngvan þorramat.
Þýðir "foetid" örugglega "illa þefjandi" þegar það er notað um plöntur? Mér finnst ég hafa séð það notað um alls konar plöntur og drasl (án þess að vera viss), mér hefur hingað til fundist að það þýði bara "mikið lyktandi" þegar það er notað á svona líffræðingalegan máta.
Þetta "small hairless and foetid" atriði er reyndar af Wikipediafærslunni: HTTP://en.wikipedia.org/wiki/Coriander
Við tökum svo chilantro- og kóríanderslátur í nýju íbúðinni í haust. Svo gætum við líka gert smá dhaniablóðmör að indverskum hætti, og soðið lundabringur í mexíkósteinselju.
krilli skrifaði 31.3.2006 14:48
Lundabringur?
Bringukolla. Lundabagga. Hemm.
krilli skrifaði 31.3.2006 15:19
I'm not sure. "Foetid" generally means "putrid, foul-smelling, etc", but it might be used more broadly when refering to plants.
Then again, it's clearly related to the word "faeces", so it seems unlikely that it could be neutralised to simply mean "having a strong smell" as opposed to "having an strong offensive smell".
Sarah skrifaði 31.3.2006 16:36
Úff, ég vil ekki vita hverskonar fólk rambar inn á þessa síðu eftir að hafa googlað eitthvað virkilega óhugnarlegt. :-/
Borgar skrifaði 31.3.2006 19:17
Ég vil taka fram að mér finnst þetta góð kenning. Þessi þar sem (genetísk) vansköpun veldur því að fólk þolir það að borða viðbjóð (kóríander). :-)
Borgar skrifaði 31.3.2006 22:02
Það sem fer mest í taugarnar á mér varðandi chilantro-vandamálið er að því er byrlað í mat sem væri að öðrum kosti ljúffengur, þ.e. burritos, quesadillur o.s.frv. Maður þarf að biðja sérstaklega um að því sé sleppt á veitingastöðum. Sumt á ekki að þurfa að nefna þegar maður pantar mat, sbr. "Ég ætla að fá humarsúpu í forrétt og sleppa þvaginu ef þar er hægt. Svo ætla ég að fá saurlausar nautalundir í villisveppasósu og vanilluís í eftirrétt, sleppa hvítlauknum!"
Bassastingurinn skrifaði 1.4.2006 16:24
Tja, Stingur, ég veit nú ekki með það. Það má búast við því að hinn smávaxni, hárlausi, angandi vinur okkar skjóti upp kollinum á matseðli veitingahúsa sem gefa sig út fyrir að elda mat hannaðan á svæðum þar sem kóríanderjurtin dvelst.
Farirðu á ultraethnic kínastað, svo fordómafullt dæmi sé tekið, máttu búast við því að þurfa handvirkt að sneiða hjá hundalundum og þvagi í humarsúpunni.
krilli skrifaði 1.4.2006 16:52
Jammster! Einnig langar mig að rifja upp að hinn háæruverðugi vefguð flaggar gjarnan sinni "góðkynja (genetísku) vansköpun" að geta ekki melt laktósa og ber höfuðið hátt! Hin genetíska vansköpun að snæða kóríander með bestu lyst er á hinn bóginn "illkynja vansköpun" sem ber að útrýma á andstyggilegan og óafturkræfan hátt... og hananú!
Bassastingurinn skrifaði 2.4.2006 4:47
"Þetta er einfaldlega ekki rétt hjá þér". Báðar vanskapanirnar eru illkynja. Þú ert að færa mjólkurvansköpun yðar yfir á mig.
Það er nefnilega einmitt vansköpun yðar sem gerir yður kleyft að drekka úr júgri jórturdýra. Ég, aftur á móti, er einmitt ekki stökkbreyttur (elligar vanskapaður) og reyni því að forðast að bergja á hverjum þeim vessa sem úr klaufdýrum vellur. :-P
Borgar skrifaði 3.4.2006 10:19
Þú ert sumsé svo "fullkominn" að meltingarkefi þitt er best til þess fallið að naga rót og muru líkt og forfeður okkar Cro Magnon strákarnir og Neanderdalsgaurarnir... Til hamingju, Borgar! Flest heilbrigt fólk kallar þetta framþróun, but what ever helps you sleep at night...
Bassastingurinn skrifaði 3.4.2006 12:08