Bankinn sem áður gekk undir nafninu Íslandsbanki
Þetta Glitnisdæmi er ekki alveg nógu vel heppnað. Þetta er auðvitað ekkert eina dæmið en mér finnst undarlegt að slengja þessu svona á viðskiptavinina.
Það er kannski bara vegna þess að þetta er svo rosaleg breyting. Stemningin fer úr hvítu og afslöppuðu yfir í einhverja blóðræpulitaða upphrópun.
Stóðu ekki KB-banki í heilli herferð þegar að þeir voru að skipta úr Búnaðarbankanum? Það gæti verið mis, en mig minnir endilega, að það hafi verið einhverjar hallærislegar auglýsingar með einhverri stelpu í snjóskafli? Svona til þess að létta fólki umskiptin.
Það getur vel verið að þeir séu búnir að vera að kynna þetta fyrir viðskiptavinum sínum; ég er ekki besta dæmið um einstakling í góðu sambandi við umheiminn. Ég er reyndar ekki viðskiptavinur heldur, svo í raun skiptir þetta mig minna máli en ætla mætti af þessum skrifum. :-)

Ein ummæli við “Bankinn sem áður gekk undir nafninu Íslandsbanki”
Mér fannst þetta líka áberandi kjánalegt.
Muniði dularfullu auglýsingarnar á strætóskýlunum? Bomm bobomm, það kemur eitthvað spennandi með línuriti á í næstu framtíð!
Spennuherferðir eru voða sniðugar ef þú ert að auglýsa nýjan sleikjó eða Rob Schneider, en ef hluturinn sem á að auglýsa er eitthvað sem skiptir máli upp á líf og dauða (eins og bankinn fólks) þá er formúlan svona:
[spennandi] + [skiptir máli] => [veldur ótta]
Bankar eiga ekki að valda ógn og skelfingu hjá viðskiptavinum - nduh!
Kjána markaðsfræðingar apa eftir auglýsingatækni frá útlöndum, skilja ekki að tæknin gengur út á að stjórna tilfinningum almennings *á réttan hátt*.
Samanber þegar fréttist að Íslandsbankaskiltin á útibúunum hefðu verið tekin niður og ekkert komið í staðinn. Þá flugu sögur um bæinn sem gengu út á að erlendur banki væri að gleypa Íslandsbanka í "hostile takeover" . Skil vel að þannig sögur fari af stað, og skil líka vel að Íslandsbankastjóri hafi verið heldur óhress með það. Auglýsingaherferðin farin úr böndunum strax á fyrstu dögum, og fólk treystir bankanum örlítið minna. Sama þó í vikunni á eftir hafi verið sett upp skilti með íslenskum bókstöfum á.
krilli skrifaði 15.3.2006 19:35