Greinasafn fyrir March, 2006

föstudagur, 31. mar 2006

Yðar einlægur

Þegar fólk skrifar undir bréfin sín segir það sitt á hvað; kær kveðja, bestu kveðjur, kveðjur, kveðja… Fleirtala og eintala eru notaðar eftir einhverri máltilfinningu sem mig virðst skorta. Ég hef þó aldrei heyrt neinn nota "besta kveðja". Hverju sætir? Lesa áfram...

miðvikudagur, 29. mar 2006

Gestablogg

"Ég rakst á svo fallegt ljóð eftir Andra Snæ Magnason í dag og þar sem ég hefi ekki mitt eigið blogg ákvað ég að koma því á framfæri hér: Tanka um vorið á öðrum sumardegi Helvítis fuglar! hættið strax að trufla mig ég er að reyna að yrkja ljóð um vorið snautið ykkur skammirnar" Í boði Bassastingsins Lesa áfram...

þriðjudagur, 28. mar 2006

Súrir mannspungar

Þegar ég verð fyrsti raðmorðingi Íslands ætla ég að vera þjóðlegur. Ég var að hugsa um að búa til þorramat úr fórnarlömbum mínum. Til dæmis hangimannakjöt og barnablóðmör. Lesa áfram...

miðvikudagur, 15. mar 2006

H er fyrir Hilmar

Hvað ætli Geir H. Haarde sé að gera núna? Ég hef ekki heyrt neitt af honum í heilan dag? Ætli það sé allt í lagi? Það hefur vonandi ekkert komið fyrir. Lesa áfram...

mánudagur, 13. mar 2006

Cocos nucifera

Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að borða kókoshnetu í kvöldmatinn en þann ávöxt hafði ég aldrei áður bragðað (öðru vísi en sem innihaldsefni í Bounty súkkulaði og öðru þessháttar). Ég komst að tvennu: Það er ákaflega auðvelt að opna kókoshnetu. Kókoshnetur eru mjög vondar á bragðið. Lesa áfram...

Bankinn sem áður gekk undir nafninu Íslandsbanki

Þetta Glitnisdæmi er ekki alveg nógu vel heppnað. Þetta er auðvitað ekkert eina dæmið en mér finnst undarlegt að slengja þessu svona á viðskiptavinina. Það er kannski bara vegna þess að þetta er svo rosaleg breyting. Stemningin fer úr hvítu og afslöppuðu yfir í einhverja blóðræpulitaða upphrópun. Stóðu ekki KB-banki í heilli herferð þegar að þeir voru [...] Lesa áfram...

mánudagur, 6. mar 2006

Vinnugeðveiki dauðans

I live! I hunger! Ég loksins laus úr brjálaðri vinnutörn. Núna ætla ég að reyna að slaka svoldið á út vikuna. Í dag hef ég ótrúlega sterka löngun til þess að spila Super Mario Bros 3. Ég held bara að ég geri það þegar ég kem heim. Svo verður það Mah Jongg í kvöld… gaman gaman! Uppfært (7.mars [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar