Spurt og svarað: Andlitsleit
Af hverju er ekki til leitarforrit þar sem maður gæti öpplódað mynd af einhverjum og fundið myndir af svipuðu fólki?
Það er í raun ekkert flókið mál að gera svona andlitsleit. Það sem maður gerir er að þú lætur eitthvað forrit reikna út einkenni hvers andlits í gögnum og skrifa niður. Svo þegar þú sendir inn mynd þá mundi sama forrit reikna einkenni þess og reyna að finna það sem hefði flest eins einkenni.
Raunverulega vandamálið liggur í að yfirstíga það að myndirnar eru misgóðar og kannski ekki allar beint framan á andlitið. Það getur flækt hlutina all nokkuð.
Út frá þessu má geta þess að mismunandi þjóðflokkar nota mismunandi aðferðir til þess að þekkja einstaklinga. Því yrði að gera ráð fyrir í leitinni. Þeas. öllu því sem mismunandi þjóðflokkar reikna inn.
Svo væri mögulegt með svona leitarvél að finna td. tvífara sinn sem blökkumann, eða einhvern sem er ekkert svo líkur manni, en hefur alveg eins augu.
Ef að þetta er spurning um að fá útrás í einhverskonar myndaleit þá má vera að retrievr svali þörfinni. Hann leitar að mynd í safni flickr útfrá teikningu.

12 ummææli við “Spurt og svarað: Andlitsleit”
Ekkert flókið mál að gera andlitsleit?
Ahhr ... well, hittumst þá einhvern tímann í sumar yfir bjór og ruslum upp einum andlitsgreiningaralgóriþma í PHP.
krilli skrifaði 11.2.2006 19:17
Andlitsgreining er verk sem hefur verið unnið áður. Allt sem þú þarft er vel skilgreint, við vitum fyrirfram að andlit er kringlótt og nefið er í miðjunni. Það eru til að minnsta kosti 4 mismunandi vel skilgreindar aðferðir til þess að gera þetta.
Að framkvæma andlitsgreiningu er langt frá því að vera flóknasta verk tölvunarfræðingar. Hell, þetta hefur meira að sega verið gert með Visual Basic.
Varðandi leitina sjálfa, man ég ekki betur en að þú sjálfur hafir útlistað bestu aðferðina á svona leit í stofusófanum heima hjá mér.
Ég stend við það sem ég segi, það er ekkert mál að framkvæma þetta. Þó svo að einstaklingur geri það ekki í kaffitímanum sínum þá þýðir það ekki að þetta sé eitthvað óyfirstíganlegt verk.
Þetta kostar hins vegar meira í tímavinnu og þróun en þykir hæfilegt fyrir eitthvað sem hefur lítinn augljósan tilgang fyrir venjulegan mann.
Mig langar svo að biðja þig, ef þig langar raunverulega að ræða þetta, að vera ekki með skæting við mig heldur setja fram einhverja haldbæra ástæðu fyrir því að þér finnst þetta óyfirstíganlegt verk.
Borgar skrifaði 12.2.2006 16:43
Ég biðst afsökunar á að virðast tippalegur, það var ekki meiningin.
Ég sagði heldur ekki að þetta væri óyfirstíganlegt verk. Hins vegar er ég alveg fastur á því að þetta sé flókið mál. Flókið verk sem t.d. við gætum unnið, samt sem áður.
Tökum samanburð á safni af andlitsmyndum sem eru allar teknar beint framan á hausinn, og lausar við linsubjögun, og búið er að merkja inn á einhverja punkta fyrir hvern andlitsfídus. Þá er bara að bera saman fjarlægðir milli punktana, munnvik í munnvik, augnkrók í augnkrók. Þá fær maður mengi af tvívíðum fjarlægðum milli samsvarandi punkta. Hvernig gefurðu mislíkum fylkjum mismunandi einkunn? Það er líklega hægt að taka bara lengdina á hverjum af þessum milli-punkta-fjarlægðum og leggja þær allar saman og það er einkunnin: lægsta summan er líkasta andlitið.
En hvað ef andlitin eru ekki akkúrat miðjuð í hnitakerfinu? Tökum sem dæmi mynd sem einfaldlega afrituð og hliðrað til um 10 pixla á ská. Þá myndi heildareinkunnin hækka um 10 * fjöldi punkta, og góðar líkur eru á að annað andlit - og vitlaust - hitti akkúrat á að fá betri (lægri) einkunn.
Sama ef mynd af ákveðnu andliti er einfaldlega minnkuð um 10% og borin við safnið. Þá fer línulega summan í fokk, þ.e. alls er þá óvíst að græjan nái að finna rétta anditið - þó það sé í grunninum og heilinn sé snap pow fljótur að sjá tengja saman réttu tvær myndirnar.
Mig grunar að það þurfi að taka einhverskonar hlutfall af fjarlægðum í hverju andliti innbyrðis, og eftir því sem ég best veit er maður þá kominn út í pælingar í línulegri algebru sem fengu mig til að hækka styrkleikann á sjálfsalakaffinu í frímínútunum eins mikið og vélin leyfði.
Sem sagt: Flókið mál, vil ég meina!
Þó leysanlegt, og örugglega ógeðslega gaman.
krilli skrifaði 12.2.2006 20:48
Tvö orð: Relative Offsets
Þú tekur hlutfallsleg fjarlægðir: Hversu hátt er andlitið miðað við breidd, hversu langt er milli augna, hversu breitt er nef miðað við breidd andlits, hversu mikið halla augun, o.s.frv.
Semsagt nógu mikið af upplýsingum til þess að þú getir teiknað vektormynd af einhverju í líkingu við andlitið.
Leitin sjálf er lítið mál. Nálægasti þverskurður valinna gilda. Það eru til aðferðir til þess að gera þetta, þetta er bara spurning um að útfæra þær. Það er búið að leysa þessi vandamál. Þess vegna er þetta ekki flókið.
Ég skil vel að þér finnist þetta flókið mál ef þú ætlar að byrja á því að finna upp hjólið. Ég held samt að ég mundi ekki eyða tíma í að þróa algórithma upp á möguleikann á því að hann sé betri en það sem fyrir er.
Borgar skrifaði 13.2.2006 10:39
Ég vildi bara benda fólki á þessa skemmtilegu síðu fyrst við erum að slást um andlit og uppbyggingar þess... HTTP://morphases.com/
Bassastingurinn skrifaði 13.2.2006 13:59
Ath.: Rétt eins og ég sagði ekki að þetta væri óyfirstíganlegt verk, þá lýsti ég því heldur ekki yfir að ég ætlaði að finna upp hjólið.
Þó það sé búið að fatta upp á reikniriti til að gera þetta skal ég hengja mig upp á það að það sé flókið að útfæra það almennilega, og ég rökstuddi af hverju mig grunar að svo sé: það er að mörgu að huga.
Af hverju er ekki allt morandi í andlitsleitargrunnum?
krilli skrifaði 13.2.2006 16:09
Af því að:
Til hvers mundirðu búa þetta til? Þeir sem hafa þörf á svona eru þegar með þetta (lögregla).
Þetta er auðvitað allt afstætt, fyrir einn mann að framkvæma er þetta sennilega frekar stór biti en Google mundu vippa þessu upp á 4 mánuðum.
Það er ekkert mál að búa til stýrikerfi. Það flækist strax ef það á að styðja eitthvað meira en einn örgjörva og einfalda meðferð á einhverju einu merki. Stýrikerfi fyrir PC vél er sennilega eitt flóknasta verk tölvunarfræðinar.
Hérna er ég að horfa á skóginn en ekki stök tré þegar ég segi að þetta sé ekki flókið. Ég er að hugsa um eitthvað sem þarf ekki að vera 99.9% nákvæmt því að þetta er ekki í öryggiskerfi heldur í leikfang.
Mig langar að benda þér á að skoða aðeins það sem ég er að vísa á hérna. Það er nefnilega töluvert magn af þessu dóti til.
Nákvæmlega það sem við erum að tala um er til hérna
(Henni fannst ég vera líkastur John D. Rockefeller), Riya.com eru að að setja af stað sinn gaur...
Borgar skrifaði 13.2.2006 17:36
Mín skilgreining á flókið:
Eitthvað sem kostar meira í tímavinnu og þróun en þykir hæfilegt fyrir eitthvað sem hefur lítinn augljósan tilgang fyrir venjulegan mann.
Reyndar hefur margt lítinn augljósan tilgang fyrir venjulegan mann, ber þar hæst að nefna tölvuleiki. Þess utan myndi útfærarinn fá mikla virðingu og aðdáun fyrir að smíða svona.
Hér er til gamans mynd af krabba að verja heimasíðuna sína fyrir krabba sem er líklega búinn að drekka of mikið kaffi.
krilli skrifaði 14.2.2006 14:30
HAHAHA! Henni fannst ég líkastur Charles Manson :-D
Then again, þá fannst henni ég líka dáldið líkur Mel Gibson, Brad Pitt, Eddie Murphy og Jasser Arafat, svo einhverjir séu nefndir. ;)
Ingo skrifaði 14.2.2006 14:53
Ingó -it says my friend looks most like Sharon Tate ;-)
I´m apparently most like Fay Wray, Charlize Theron and two Bollywood actresses.
I also bear a striking resemblance to George Michael, David Bowie and Aretha Franklin :-)
Sarah skrifaði 14.2.2006 18:26
Ég er náttúrulega sláandi líkur henni Jean Seberg HTTP://imdb.com/name/nm0781029/ eins og allir vita.
Eins erum við Katie Holmes geysilík... HTTP://imdb.com/name/nm0005017/
Það útskýrir líka hvers vegna Tom Cruise er alltaf að reyna að laumast í gumpinn á mér.
Bassastingurinn skrifaði 14.2.2006 18:41
Ég setti inn mynd af mér með hálflokuð augu og fékk Jackie Chan til baka með sólskinsbrosið sitt.
Krilli skrifaði 14.2.2006 20:51