;-)
Mér finnst það óendanlega skemmtilegur siður að blikka einhvern. Þá er ég ekki að tala um þessi semikomma-bandstrik-svigi textablikk sem tíðkast á internetunum. Heldur á ég við það þegar einhver, svo lítið beri á, loki snöggt öðru auganu í átt að einhverjum einum áhorfanda.
Blikkið gefur auðvitað til kynna að það sé eitthvað meira en sést á milli blikkarans og blikkþegans. Leynilegt samband. Blikkarinn vill oftar en ekki koma því til skila að hann "viti" það sama og blikkþeginn, en aðrir hins vegar ekki.
Svo er maður blikkaður, og veit ekkert af hverju. Nánast undantekningarlaust þegar einhver blikkar mig þá hef ég ekki hugmynd um það hvers vegna það er að gerast.
Nema að nærvera mín valdi fjörfisk?

4 ummææli við “;-)”
Af wikipedia:
"In western cultures, women may wink to men they are interested in dating, but this has grown out of fashion. However, women still frequently wink at men when they want something free."
1) Biturð Wikipediaritarans er unaðsleg með crema.
2) Hvað ætli það sé sem þær vilja fá ókeypis hjá manninum?
krilli skrifaði 21.1.2006 13:45
Af "blink"-færslunni á Wikipedia:
"When an animal (usually human) chooses to blink only one eye as a signal to another in a social setting (a form of body language), it is known as winking."
MA2137.jpg
Hún vill fá það! Ókeypis!
krilli skrifaði 21.1.2006 13:48
Ég hef áhyggjur af þér Krillmeister...
Bassastingurinn skrifaði 21.1.2006 14:58
;)
krilli skrifaði 21.1.2006 21:46