mánudagur, 2. jan 2006

Ársuppgjör 2005

Ég er svona búinn að vera að melta það svona hvað stóð uppúr á þessu ári.

Númer eitt á listanum er auðvitað nýja fína kærastan mín. Þegar ég hugsa til baka þá man ég ennþá ljóst eftir þeim ósköpum sem gengu á í kvennamálum mínum þetta ár. Svo það má segja að þetta sé tvöföld blessun. ;-D

Annað sem mér er kært er að opna orðabókin er loksins að taka á sig mynd. Ég er búinn að ganga með þetta í maganum svo lengi að ég get varla beðið eftir að hún komist í loftið. Ef allt fer að óskum get ég aftur montað mig að ári yfir því að hafa gert þetta að veruleika.

Mér finnst það skemmtilegt hvað hlutir sem eru búnir að þykja svoldið lummó lengi eru aftur orðnir félagslega ásættanlegir á Íslandi. Þar ber helst að nefna borðspil. Eða er það kannski er það aldurinn sem gerir mér kleift að taka aftur þátt í lummó hlutum?

Í alla staði er ég búinn að spila hlutverkaspil á þessu ári, í fyrsta skipti í yfir áratug, og hafa mjög gaman af. Svo má ég vart sjá Mah-Jong kubba án þess að gjörsamlega umturnast af spilaáfergju (en Mah-Jong er reyndar ekki lummó af því að það er bæði fjárhættuspil og frá Asíu). Spilið Axis & Allies er líka fínt spil sem ég kynntist nýlega og það hefur meira að segja valdið mér bráðaáhuga á heimstyrjöldunum.

Ég hætti (óvart) að reykja á þessu ári. Ég veit ekki hvenær, það var í haust allavega. Ég er ennþá ekki alveg kominn yfir hæðina en ég held bara að þetta geti vel hafist.

Litla Tekken mótið sem ég hélt í ágúst var gríðarlega vel heppnað og held ég að það verði að endurtaka það 2006.

Eitt sem ég gerði í ár sem ég hef ekki gert oft áður, sérstaklega ekki sama árið: Sauðburður & réttir. Það þarf að gera það aftur, allavega svona rétt að kíkja. :-)

2 ummææli við “Ársuppgjör 2005”

  1. hvað er málið með að hafa skriljón dauða tengla í blogginu þínu?

    157.157.10.134 skrifaði 16.2.2006 11:14

  2. Hvað er málið með að skrifa ekki undir nafni?

    Borgar skrifaði 16.2.2006 11:15


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings