þriðjudagur, 1. nóv 2005

Sony Music og rootkitið hans

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að tónlistarútgefendur eru að berjast fyrir lífi sínu. Þeir eru alltaf að finna upp nýjar leiðir til þess að vernda gögnin sem við kaupum af þeim frá okkur (?).

Við, heimskur almúginn, látum okkur fátt um finnast um bægslaganginn í þeim og hölum tónlistinni áfram niður af netinu, enda er það lítið mál.

Nýjasta þróunin er að Sony hafa gefið út "afritunarvörn" sem býr til ljótar holur í stýrikerfinu og treður sínu sóðalega sjálfi þangað inn.

Nú er svo komið að maður er bókstaflega orðinn hræddur við að setja geisladisk í tölvuna sína. Ég þori ekki lengur að kaupa mér diska af því að þeir rugla í stýrikerfinu mínu. Það er öruggara fyrir mig að sækja mér tónlist af netinu.

Ekki bara það, það getur einnig verið ansi varasamt að kaupa tónlist af netinu, sjáið til dæmis hverju Hjalti lenti í. Risarnir eru staðráðnir í að koma DRM ofan í okkur, hvað sem það kostar. Það kostar okkur frelsi. Við vorum svo sem ekkert að nota það eða hvað?

Jámm, það er semsagt öruggara, og auðveldara, að stela tónlist en að kaupa hana.

7 ummææli við “Sony Music og rootkitið hans”

  1. Það er nefninlega svo fáránlegt að allar þessar forvarnir gegn þjófnaði á sjónvarpsefni og tónlist bitnar á fólki sem borgar fyrir þessa hluti.

    Dæmi: Í hvert einasta skipti sem ég set seríu 5 af Simpsons á DVD í spilarann þarf (það er ekki hægt að skip-a yfir þetta svo maður er búinn að sjá þetta milljón sinnum) ég að horfa á langt video um að það eigi ekki að downloada svona efni af netinu. Ég væri ekki að sjá þessi fuckings viðvörun ef ég hefði ekki einmitt virt þetta! Ef maður myndi downloada þessu þyrfti maður aldrei að sjá þessar viðvaranir. Þannig að maður græðir meira á því að downloada en að kaupa, m.a. vegna forvarna gegn því. Þeir vinna á móti sér, þessir bjánar.

    Oddur Freyr skrifaði 3.11.2005 19:09

  2. Einmitt.

    Hvort viltu stela tónlist á auðveldan fljótlegan hátt.

    EÐA...

    Borga fyrir eitthvað sem virkar kannski í geislaspilaranum þínum og mögulega rústar tölvunni þinni?

    Ef þeir ætla að lifa þetta af þá verða þeir að finna auðvelda, ódýra leið til þess að koma tónlist til okkar á netinu. Eitthvað sem er betra en DC. Eitthvað sem gerir hlutina eins vel og iTunes. :-)

    Borgar skrifaði 4.11.2005 10:59

  3. Ég get bætt við einn einni sögunni.

    Nú er ég áskrifandi að Yahoo! music, og fyrir nokkrum dögum þá hætti forritið að virka. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum fékk ég bara að hlusta á 30 sekúndna sample af hverju lagi (líkt og þeir sem borga ekkert).

    Eftir nokkur rístört og tilraunir þá datt þetta í lag - sem betur fer.

    Ég er farinn að halda að fólk sem útfærir tónlist á netinu sé vont.

    Hvers vegna er svo erfitt að sleppa að troða DRM inn í lögin sjálf og nota bara hugbúnað eins og til þess að þekkja lagið, og athuga á miðlægum server hvort ég eigi réttindin. Ef ég á ekki réttindin þá get ég ráðið hvort ég stel tónlistinni eða borga fyrir hana.

    Þá loksins væri einfaldara að kaupa tónlist en að stela henni.

    Ég vil hafa alla tónlist á þessu formati.

    Það er enginn sem hefur útfært þetta með notandann í huga. Apple vill bara selja iPod og öll lög hjá þeim eru á einhverju steikttu AAC formati sem enginn kann að lesa nema þeir. Apple dettur ekki í hug að útfæra áskriftarþjónustu vegna þess að iPod styður það ekki. Sony er í tómu tjóni og vinnur gegn notandanum. Napster, Yahoo! og RealNetworks selja lög á einhverju lokuðu formati sem iPod kann ekki að lesa.

    Niðurstaðan - auðveldast að kaupa sér geisladisk út í búð, henda honum í Linux tölvu og afrita allt draslið yfir í OGG.

    Reið húsmóðir í Vesturbænum.

    Hjalti skrifaði 9.11.2005 1:43

  4. Eitthvað er tæknin að stríða okkur.

    Það duttu út tveir linkar:

    411 Song: HTTP://www.411song.com/

    Ogg: HTTP://www.vorbis.com/faq/#what

    Hjalti skrifaði 9.11.2005 1:45

  5. Ég mæli sterklega með Winamp og Ogg plugin (fáanlegt á winamp.com).

    HTTP://www.winamp.com/plugins/details.php?id=143936

    Hjalti skrifaði 9.11.2005 2:59

  6. Sjálfur nota ég Foobar 2000 (http://www.foobar2000.org/) á Windows og XMMS (http://www.xmms.org/) á Linux.

    Foobar er fínn player sem spilar bara allt og er að auki scriptable fyrir svona nöts tilfelli eins og mig. Mér fannst Winamp vera orðinn svo þungur og klunnalegur að ég gafst upp á honum. Svo var hann líka með crash vesen við mig á vinnuvélinni.

    Það hlýtur að koma að því að þeir gefast upp á þessu DRM kjaftæði. Það, eða þeir skemma svo mikið fyrir sjálfum sér að einhver snjall kemur og rústar þeim öllum með betri hugmynd.

    Þangað til ætla ég að halda áfram að stela tónlist á netinu... af því að það er auðveldast. :-)

    Borgar skrifaði 9.11.2005 11:30

  7. annars rakst ég á brilliant síðu í gær.

    HTTP://www.allofmp3.com/

    þetta er rússnesk síða sem er frábær. Þeir selja heilu diskana á 60 krónur ($1 dollar). MP3, ogg og fleiri formöt - allt opið.

    Þá spyrja ýmsir - hvernig er þetta hægt, þetta hlýtur að vera ólöglegt?

    neibs - rússarnir eru að taka útgefendur með krókbragði. Þar sem útgefendur selja tónlist á þessu verði í rússlandi, þá er ekkert sem stoppar rússana að hleypa öllum heiminum í sín verð.

    Þökk sé lélegum lögum í rússlandi, þá er tónlistin sem maður kaupir ekki læst.

    Hjalti skrifaði 9.11.2005 20:13


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar