þriðjudagur, 22. nóv 2005

Kerfistiltekt - 2. hluti

Ég setti ég bara upp referer- og commentspam varnir til prufu á þessum vef og rótarvef Undralandsins. Þetta er gert á tvo mismunandi vegu:

Annars vegar er reynt að hamla það að fólk komist inn með því að skoða tilvísunarslóðina (slóðin sem það kemur frá) og senda það á clickthrough síðu ef svo er. Það er hægt að sjá þetta virka hérna.

Í öðru lagi nota ég mér IP-tölu svartlista sem ég grenjaði út úr BRE. Þeir sem koma inn á vondri IP tölu fá upplýsingar um það hvað þeir eru miklir kjánar.

Svo uppfærði ég líka kerfið hjá henni Helgu.

Ég tók einnig í dag eftir tveimur villum í kerfinu. Dagatalið flettist ekki lengur um mánuði þegar maður flettir þeim, og fréttasafnið virðist sýna URL undarlega. Það bætist á framkvæmdalistann. :-P

Núna ætla ég þó að finna mér skyndibitamat og sjá hvort að ég get komið staðarnetinu heima hjá pabba aftur í gang.

2 ummææli við “Kerfistiltekt - 2. hluti”

  1. Hey, ef SuSE fer ekki að fúnka eins og þú vilt, kíktu þá hér: HTTP://www.linux-watch.com/news/NS8930318322.html :)

    Enn ein blindgatan að fálma í!

    krilli skrifaði 23.11.2005 23:02

  2. Ég hef alveg grun um að Slackware sé fjör, amk. fyrir mig en konan þarf víst að geta notað þetta líka.

    Annars er SuSE alveg málið núna eftir að ég er búinn að setja flest allt það dót upp sem ég þarf að nota. :-)

    Borgar skrifaði 24.11.2005 13:44


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings