mánudagur, 21. nóv 2005

Hver á þennan kött?

Hvers vegna er svart-hvítur fressköttur grenjandi fyrir utan húsið mitt? Hann er mannelskur og það hefur greinlega verið hugsað vel um hann.

Þegar ég bauð honum inn í gær og uppá eldgamlan þurrmat þá gúffaði hann í sig heilli skál eins og hann ætti lífið að leysa. Ég hef átt ketti áður og ég veit að þeir eru matvönd dýr sem láta ekki bjóða sér hvað sem er. Ég þykist þekkja svangan kött þegar ég sé hann, en ég veit svosem líka að þeir geta verið útsmognir.

Það sem er svona pínu lítið undarlegt er að á fjólubláu ólinni hans er símanúmer Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn!

Ein ummæli við “Hver á þennan kött?”

  1. Um daginn ákvað bandarískur köttur að snuðra í spennandi músóttum flutningagámi og vaknaði í París Frakklandi nokkrum dögum síðar. Þannig að það er kannski ekkert svo undarlegt að norðlenskur köttur sé grenjandi í sollinum í 101. Ég myndi endilega hringja og spyrja út í málið ef ég væri þú.

    Svo auðvitað er líka til í dæminu að kötturinn sé nýfluttur með eigendum sínum suður og það hafi farist fyrir að endurmerkja hann.

    Unnur skrifaði 21.11.2005 23:18


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings