miðvikudagur, 16. nóv 2005

Grálistunargagnagrunnsviðmótsforritun

Ég er eitthvað slappur heima og að gramsa í undralandinu. Meðal þess sem hefur alltaf angrað mig er að ég hef ekki haft stjórn á grálistunar spamvörninni sem ég nota.

Vörnin keyrir bara í bakgrunni og býr til gagnalista sem taka pláss og það er í raun engin praktís leið fyrir mig til þess að færa IP tölu á milli grá- og hvítlista. Ég vil líka geta hent spamtilraunum út af grálistanum eftir ákveðið langan tíma, en vörnin virðist ekki gera það sjálf.

Svo fyrst ég var heima í næði þá forritaði ég bara viðmót á gagnagrunninn sem geymir upplýsingarnar. Í kjölfarið þreif ég svo grunninn og hvítlistaði þá póstþjóna sem mér þóttu traustsins virði.

Núna þarf ég svo bara að láta græjuna lesa stillingarnar úr sama fæl og spamvörnin og svo þarf ég bara að setja LGPL á þetta eða eitthvað.

Það sem er kannski mest fríkí við þetta er að ég spíti svona dóti út á nokkrum klukkutímum. Af hverju geri ég ekki meira af þessu?

Ein ummæli við “Grálistunargagnagrunnsviðmótsforritun”

  1. Ooohhh.... Þú ert svo kúl! Þú ert netjan mín...

    Bassastingur skrifaði 17.11.2005 11:46


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar