Greinasafn fyrir November, 2005

þriðjudagur, 29. nóv 2005

Öryrkjun á Íslandi - Sjúkratrygginar

Sem framhald á ræðu minni um Tryggingastofnun ríkisins vil ég aðeins minnast á Tryggingafélög. Ég þykist nokkuð viss um að ef eitthvað svindl er í gangi einhverstaðar þá er það hjá Tryggingafélögunum. Ég vinn hjá vátryggingarfélagi. Þetta hefur gefið mér örlitla innsýn inn í hvernig hægt er að verða ríkur á tryggingarsvikum. Það er hellings vesen, [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 22. nóv 2005

Kerfistiltekt - 2. hluti

Ég setti ég bara upp referer- og commentspam varnir til prufu á þessum vef og rótarvef Undralandsins. Þetta er gert á tvo mismunandi vegu: Annars vegar er reynt að hamla það að fólk komist inn með því að skoða tilvísunarslóðina (slóðin sem það kemur frá) og senda það á clickthrough síðu ef svo er. Það er [...] Lesa áfram...

mánudagur, 21. nóv 2005

Hver á þennan kött?

Hvers vegna er svart-hvítur fressköttur grenjandi fyrir utan húsið mitt? Hann er mannelskur og það hefur greinlega verið hugsað vel um hann. Þegar ég bauð honum inn í gær og uppá eldgamlan þurrmat þá gúffaði hann í sig heilli skál eins og hann ætti lífið að leysa. Ég hef átt ketti áður og ég veit [...] Lesa áfram...

Framtíðar leslisti

Þessi top 20 listi af geek bókmenntum var birtur um daginn. Ég fann þetta á Slashdot áðan og í kjölfarið er ég að velta fyrir mér hvað ég á eftir. Það eru víst að koma jól og kannski ekki vera að reyna að vera kominn með það á hreint hvað manni vantar í safnið. :-) The [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 16. nóv 2005

Grálistunargagnagrunnsviðmótsforritun

Ég er eitthvað slappur heima og að gramsa í undralandinu. Meðal þess sem hefur alltaf angrað mig er að ég hef ekki haft stjórn á grálistunar spamvörninni sem ég nota. Vörnin keyrir bara í bakgrunni og býr til gagnalista sem taka pláss og það er í raun engin praktís leið fyrir mig til þess að færa [...] Lesa áfram...

Kynvís

Gagn-, tví-, og samkynhneigður eru, svei mér, allt of löng og flókin orð. Hér eftir held ég að ég tali eins og sjónvarpið. Þar kom fram í texta á amerískum gamanþætti að íslenska þýðingin á orðinu straight er "kynvís". Getur einhver sagt mér andheitið fyrir "kynvís"? Lesa áfram...

föstudagur, 11. nóv 2005

Öryrkjun á Íslandi - Öryrkjar

Ég man vel hversu erfitt mér þótti að játa það við fólk að ég væri öryrki. Mér þykir ennþá óþægilegt að segja frá því að ég hafi verið örorkubótaþegi. Ég ætla þó að koma út úr skápnum núna í von um einhver geri sér grein fyrir því hversu heimskulegar hugmyndir almennings um öryrkja eru. Það sem [...] Lesa áfram...

Kerfistiltekt

Var að skipta út Spurl og Flickr boxunum á þessari síðu fyrir nýja lausn. Sem er reyndar svoldið sniðug… Annars vegar eru RSS straumarnir frá Flickr og Spurl sóttir inn á þessa vél. Hins vegar nota ég aðgerð í kerfinu sem heitir xmlimport. Aðgerðin sækir XML og XSL skjöl og keyrir þau saman til þess að [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 1. nóv 2005

Sony Music og rootkitið hans

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að tónlistarútgefendur eru að berjast fyrir lífi sínu. Þeir eru alltaf að finna upp nýjar leiðir til þess að vernda gögnin sem við kaupum af þeim frá okkur (?). Við, heimskur almúginn, látum okkur fátt um finnast um bægslaganginn í þeim og hölum tónlistinni áfram niður af netinu, enda [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar