Nú nálgast þetta...
Ég verð þrítugur næstkomandi sunnudag. Tilhugsunin ein ber mig nánast ofurliði. Samt veit ég ekki einu sinni af hverju mér finnst þetta svona erfitt.
Ég verð þrítugur næstkomandi sunnudag. Tilhugsunin ein ber mig nánast ofurliði. Samt veit ég ekki einu sinni af hverju mér finnst þetta svona erfitt.
6 ummææli við “Nú nálgast þetta...”
Þar sem þú verður bara fallegri og gáfaðri með hverju árinu sem líður snúllinn minn þá er þetta hugsanlega undirmeðvitundin að kvíða fyrir því að þú þurfir að ráða þér lífverði til að verjast ágangi íslenskra kvenna!! :)
Unnur skrifaði 10.10.2005 14:43
Þetta er nokkuð góð kenning hjá henni Unni. Ég býð fram krafta mína sem lífvörð og skal gera það sem ég get til að draga athygli kvenþjóðarinnar frá þér á þessum erfiðu tímum sem framundan eru.
HerraBRE skrifaði 10.10.2005 15:42
Memento mori!
Nýtum tímann sem best ...
"A man who dares to waste one hour of time has not discovered the value of life.", sagði Charles Darwin þegar hann var búinn að finna upp smáfuglinn finkuna.
krilli skrifaði 10.10.2005 18:27
Ekki hefði mér dottið í hug að þú værir að verða þrítugur lambið mitt :)
Ertu ekki búinn að fatta hvað það er frábært að eldast? Verða klárari, spakari og æðrulausari?
Skal svo sannarlega skála við þig í tilefni afmælis við gott tækifæri.
Lína skrifaði 11.10.2005 13:51
Úff... you are old man. Nú nálgast dauðinn.
Það er næstum því næsta skrefið... Djöfull ertu orðinn gamall, vá!
Oddur skrifaði 12.10.2005 9:20
sonasona - ég kem eftir mánuð
Helga Þórey skrifaði 15.10.2005 13:20