miðvikudagur, 26. okt 2005

Google Web Accelerator

Hann er kominn aftur og núna er þetta persónulegt. Google hafa ákveðið að þeir ráði hvernig vefurinn virkar. Algjörlega þvert á hinar augljósu staðreyndir og mótmæli tæknimanna um allan heim.

Þar með hafa þeir samstundis unnið sér inn óvild mína. Þeir fara beint á dauðalistann með Microsoft og Verisign.

Ég veit ekki hvernig þeir ætla að komast af þessum lista, en af reynslunni þekki ég að það er ekki auðvelt að klifra upp úr svaðinu. Það er eins og kviksyndi.

Proxy þjónunum þeirra er hér með meinaður aðgangur að þessari síðu og ef einhver annar í hýsingu hér vill loka á þá, þá er bara að láta mig vita.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings