Greinasafn fyrir October, 2005

föstudagur, 28. okt 2005

Re-Write

Ég er búinn að vera að endurskrifa blogg kerfið mitt eina ferðina enn og virðist hafa gert óvenju margar villur. Ég er búinn að strauja þær flestar út. En ef einhver tekur eftir einhverju undarlegu vinsamlega látið þá vita, takk. Lesa áfram...

miðvikudagur, 26. okt 2005

Google Web Accelerator

Hann er kominn aftur og núna er þetta persónulegt. Google hafa ákveðið að þeir ráði hvernig vefurinn virkar. Algjörlega þvert á hinar augljósu staðreyndir og mótmæli tæknimanna um allan heim. Þar með hafa þeir samstundis unnið sér inn óvild mína. Þeir fara beint á dauðalistann með Microsoft og Verisign. Ég veit ekki hvernig þeir ætla að komast [...] Lesa áfram...

föstudagur, 21. okt 2005

Ruby on Rails

Núna ætla ég að verða Ruby meistari og búa til Ruby on Rails vefforrit. Mér er sagt að þetta séu hné randaflugunnar. Ég er reyndar aðallega að vona að þetta geti orðið til þess að minnka handavinnuna í kringum Opnu Orðabókina sem ég er að búa til. Ég læt vita hvernig gengur. Lesa áfram...

mánudagur, 10. okt 2005

Nú nálgast þetta...

Ég verð þrítugur næstkomandi sunnudag. Tilhugsunin ein ber mig nánast ofurliði. Samt veit ég ekki einu sinni af hverju mér finnst þetta svona erfitt. Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar