miðvikudagur, 28. sep 2005

Upprennandi svalasta tölva í heimi...

Svona kúll laptop fyrir 7.000 kall er nákvæmlega það sem veröldin þarf!

Ég segi að þetta verði næsta iPod!

9 ummææli við “Upprennandi svalasta tölva í heimi...”

  1. Ekki sjötíu þúsund þúsund, kallinn minn, heldur sjö þúsund. Nema þú sért að reikna með endanlegu verði með tollum, sköttum og STEF-gjaldi.

    krilli skrifaði 28.9.2005 23:53

  2. ÚPS! Lagað :-)

    Borgar skrifaði 29.9.2005 0:27

  3. Lagað? 7.000 þúsund? Sumsé sjö milljónir?

    Jósi skrifaði 29.9.2005 1:00

  4. Jæja, þetta er nú orðið frekar pínlegt fyrir mig.

    Í framtíðinni ætti ég sumsé að vara mig á því að vera að opna á mér lúðurinn eftir klukkan bjór.

    Borgar skrifaði 29.9.2005 9:28

  5. Já - fylltist óstjórnlegri gleði þegar ég sá þessa frétt í gær. Og mig langar líka í... :)

    Lína skrifaði 30.9.2005 8:49

  6. Besta planið væri að selja þær á $200 og láta helminginn af þeirri summu kosta vél handa fátækum. Þá væri þetta BEST!!

    Borgar skrifaði 30.9.2005 9:44

  7. Í gær ræddi ég við Steven Sinofsky um þessa tölvu, það var ekki hægt að sleppa þessari spurningu þar sem hann er yfirmaður Microsoft Office (bloggið hans er: blogs.msdn.com/techtalk)

    Hann kom með áhugaverðan punkt. Tölvan hefur verið kynnt sem leið til þess að skipta út bókum fyrir tölvur í þriðja heiminum - en hvað verður um höfundarrétt þeirra sem skrifa bækurnar?

    Reikningsdæmið gerir ráð fyrir að allar bækur séu ókeypis, sem þýðir að höfundar fá ekkert. Auðvitað geta börnin notað Linux og Open Office og Microsoft fær ekki krónu - en eiga þau að lesa stolnar (eða open source) bækur?

    p.s. sem nemandi í MIT styð ég að sjálfsögðu tölvuna og allt sem Nicholas Negroponte lætur frá sér - en þetta var samt ágætis spurning hjá Steven.

    Hjalti skrifaði 20.10.2005 17:09

  8. Ég sé ekki að það "verði" neitt "um" höfundarrétt þeirra sem skrifa bækur. (Vinsamlega ekki skilja gæsalappasetningu mína sem tilraun til að vera með stæla.)

    Hvað missa þeir sem selja keypis bækur? Það bætast líklega við þúsundir lesanda rafbóka. Þeir eiga ábyggilega eftir að reyna að sækja sér lesefni á ýmsan máta, þar á meðal opnar bækur. Til dæmis finnst mér ótrúlega fallegt að 3. heimurinn geti lesið bækurnar hans Bruce Eckel þvers og kruss (Thinking in C++ / Java / Python / allskonar).

    En þetta eru ekki tilvonandi kaupendur þeirra bóka sem eru til sölu nú þegar. Þau hafa ekki efni á því að eyða árslaununum í ebook útgáfu af "Fanciful Programming for Dummies". Hugsanlega munu þau hafa fjárráð til þess eftir nokkur ár þegar einhverjir þeirra eru búnir að læra að forrita eins og eldibrandar, verandi knúin af hungri þeirra sem vantar allt.

    En þetta verður þannig að neysla þriðja heimsins á bókum sem eru þegar opnar mun aukast – frá núlli.

    Þetta verður þannig að þau eiga líka eftir að stela bókum sem þau hafa ekki efni á því að kaupa. En sú neysla er líka í núlli; Það eru engir peningar að koma frá þessu fólki í vasa höfunda hvort eð er. Þeir sem hafa efni á því að kaupa bækur þarna er fólkið sem hefur efni á því að kaupa tölvu til að byrja með, og eru þar með í hópi þeirra sem hefur líklega einhver ráð til þess að borga fyrir bækur.

    Það sem ég sé fyrir mér er að höfundar gætu hreinlega grætt á því að vera með þúsundir hungraðra prófarkalesara: Þeir gera útgáfusamninga við hvíta, ríka heiminn þar sem bækurnar kosta. Þeir gera "útgáfusamning" við Afríku og Suður-Ameríku, þar sem bækurnar kosta ekki neitt. Þarna væru bókahöfundar að setja rafrænar útgáfur á netið sem íbúar hvíta, ríka heims gætu stolið í stað þess að borga fyrir "réttu" útgáfuna, en málið er að stolnar rafútgáfur af bókum eru hvort eð er á hverju strái á internetinu. Það er verið að sjúga heilu bækurnar úr Safari-vefbókasafnskerfi þeirra O'Reilly manna, búa til PDF skrá og setja í snyrtilega .torrent-skrá.

    Þannig geta þeir sem vilja haldið áfram að nýta sér því sem næst ókeypis vinnuaflið í fátækustu löndunum, nema við mun verðmætari iðju en Nike-skógerð: tæknibókaprófarkalestur! :)

    Í stuttu máli: sjáum fyrir okkur tvö mengi. Mengi þeirra sem borga fyrir bækur, og mengi þeirra sem borga ekki fyrir bækur. Með þessari tölvu er hugsanlega að fara að bætast talsvert í seinna mengið – en ekki á kostnað þess fyrra.

    Hvað verður þá um höfundarréttinn?

    Það verður bara voðalega mikið eins fyrir honum komið og er í dag, í allri praktík.

    Heimurinn gæti hins vegar skánað örlítið.

    krilli skrifaði 21.10.2005 11:06

  9. Ég held barasta að ég sé ekki tilbúinn til þess ennþá að ræða málefni tengd höfundarétti, DRM, einkaleyfum, og Microsoft. Ég er hræddur um að ég mundi bara fara að öskra og láta eins og asni.

    Ég veit ekki hvort þeir skilja þetta bara ekki, eða hvort þeir eru í græðgi sinni að þyggja peninga af fólkinu sem skilur þetta ekki... Hvort sem það er þá verður mér hreinlega óglatt af öllu saman.

    Linkur

    Borgar skrifaði 21.10.2005 15:50


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings