Laugardagsrúnturinn
Ég þurfti að komast út úr húsi laugardagsmorgunn. Svo ég ákvað að skreppa í Gvend Dúllara í Hafnarfirðinum.
Mér finnst alltaf svoldið gaman að koma í Hafnarfjörðinn. Hann var alltaf lítill, undarlegur, og dularfullur þegar ég var yngri en núna þegar ég er farinn að fullorðnast aðeins þá finnst mér hann alltaf sérstakari með hverri heimsókninni. Það er alltaf eitthvað nýtt og frábært sem maður fær að upplifa. Líka núna.
Það kom í ljós að Gvendur Dúllari var lokaður. Alveg lokaður með miða á hurðarglerinu innanverðu sem tjáði lesendum að fara frekar í Kolaportið, þar væri hægt að gera góð kaup í fornbókum.
Ég ákvað að sjá hvað Gvendur hefði handa mér í Kolaportinu, en fyrst var svoldið sem ég varð að afgreiða. Við hliðina á Dúllaranum er búð sem ég varð að skoða betur. Nefnilega "Pólsk Búð".
Jáhá, hugsaði ég þegar ég labbaði um búðina. Af hverju vill einhver reka hálftóma búð til þess eins að pólverjarnir hér geti fengið hrísmjölið sitt í pólskum umbúðum? En þetta er víst ekki alveg svo einfalt.
Það sem ég keypti var: snakk með jarðhnetu og msg bragði, snakk með _jarðarberja_ og msg bragði, óljós ávaxta drykkur með sítrónu og bananabragði sem ég þori ekki að drekka af ótta við að það sé í honum mjólkursykur (ég skil ekki pólsku).
Það sem mig langaði að kaupa en gerði ekki: instant rauðrófusúpuduft, léttsaltaðar gúrkur í vökva, hakkaðar hundasúrur í krukku, … og svona hitt og þetta sem var svo fríkað að ég vildi ekkert annað en borða það.
Svo át ég jarðhnetusnakkið á leiðinni niður í Kolaport þar sem ég gerði frábær kaup í Íslenzku Orðtakasafni eftir Halldór Halldórsson (tvö bindi á 2500 kall).
Frábær dagur! :-)
