Lagaðu mig meira
Það er svo flókið að skrifa text-processor… Ég lagaði smáatriði og núna er fjandans kerfið bilað á þessu: Úlfar (þetta á að vera blátt).
Ég þarf reyndar að setja upp drupal fyrir aðra síðu og er búinn að vera að spekúlega að droppa mínu eigin kerfi fyrir drupal og aðlaga bara sérlausnirnar mínar að því kerfi.
Ég verð væntanlega búinn að mynda mér skoðun á þessu seinna í vikunni. Ég er bara alveg hættur að nenna að vera að laga þetta helvíti. Mér gengur líka ekkert að koma notendunum mínum í uppfærslu… *úff*
Uppfært 20. 9. 2005: Villan er komin í lag. Það virðist hins vegar vera villa núna í því hvort að wiki-orð eru ekki rétt merkt. Ég er ennþá að skoða drupal og það virðist frekar flókið í notkun, en mjög öflugt.

5 ummææli við “Lagaðu mig meira”
Ahm, það er líka eitthvað fönní þarna í Um Borgar. Hann "er forvitinn um manlegt eðli og mannfr%E6%F0i". In case jú dónt nóv.
krilli skrifaði 20.9.2005 12:49
Þetta er vegna þess að ég varð að laga URL encoding út af því að MSIE er drasl en undantekningar, og röðin á því hvernig þetta er parsað, valda þessum subbuskap... fú! :-(
Borgar skrifaði 20.9.2005 13:32
Ruby on rails! Ruby on rails!
krilli skrifaði 20.9.2005 18:10
Eh... Já, en pointið er víst að losna við þessa vinnu frekar en að auka hana. :-)
Borgar skrifaði 21.9.2005 16:04
Uu, ha? Er ég að tala við manninn sem er ekki búinn að sjá Rails demóvídeóin?
krilli skrifaði 21.9.2005 18:00