Kolklukkaður
Ok ok ok! Hættið að klukka mig. Ég skal skrifa 5 (sæmilega krassandi) staðreyndir um mig:
- Ég fyllist hryllingi og ógeði við tilhugsunina um að þvo mér um hendurnar á baðherbergjum inni á skemmtistöðum. Þetta er þó matsatriði í hvert skipti og ég læt mig oft hafa það.
- Mig er búið að dauðlanga í skyr í mörg ár, en ég get ekki borðað það sökum mjólkuróþols. Mjólk hefur mér hins vegar alltaf fundist ódrekkandi.
- Mér finnst, og hefur alltaf fundist, óþægilegt að tala í síma. Einkum og sér í lagi við ókunnuga. Stundum legg ég ótrúlega hluti á mig til þess að forðast það.
- Það sem fer mest í taugarnar á mér af öllum hlutum í heimi er þegar fólk skapar vinnu fyrir mig af því að það nennir ekki að læra, eða er of latt til að bjarga sér sjálft.
- Mér finnst svona net-fad (td. eins og þetta, og öll þessi netpróf) alveg yfirgengilega heimsk og asnaleg, en ég tek þátt af ótta við útskúfun ef ég geri það ekki.

9 ummææli við “Kolklukkaður”
Ég sé yfirleitt ekki titlana á bloggfærslunum þínum fyrr en seinna sama dag eða tveimur dögum síðar. Þá eru þeir auðvitað enn betri en ef ég hefði séð þá á undan sjálfri færslunni. Titlar ættu augljóslega að vera neðst, þá sæji maður þá síðast. Nema þeir væru tilgerðarlegir þarna neðst. Kannski er best að fela þá bara efst. Bíddu nú við ... Borgar! Þú ert snillingur!!1
krilli skrifaði 21.9.2005 19:16
Já, BTW, klukk móttekið. Er að velta þessu fyrir mér. Gengur þetta bara út á 5 staðreyndir um sjálfan sig eða gilda frekari skilyrði um staðreyndir þessar?
krilli skrifaði 21.9.2005 22:43
Ég veit ekki, ég skrifaði ekki reglurnar. Þetta er bara eins og þér sýnist held ég. Farðu bara á [insert blog here] og skoðaðu hvað höfundur gerir þar. Ég gerði allavega bara eitthvað, svona til þess að vera með.
Borgar skrifaði 22.9.2005 10:19
I don't get it.
Adda skrifaði 26.9.2005 21:44
I have klukked you. You now have to write some uninterresting trite about yourself. Five "facts" in fact. Then you may klukk someone else.
Just ignore me. I deliberatly klukked the two people who I thought would most likely break the chain. Because I hate this crap and I hate myself for participating.
Borgar skrifaði 28.9.2005 10:41
"Mér finnst, og hefur alltaf fundist, óþægilegt að tala í síma. Einkum og sér í lagi við ókunnuga. Stundum legg ég ótrúlega hluti á mig til þess að forðast það."
Sama hér. Þoli þetta ekki, það er þess vegna sem ég er ekki enn búinn að ná mér í skattkortið mitt úr gömlu vinnunni þrátt fyrir að ég hafi haft mánuð til þess og sé bráðum að fara að fá útborgað annars staðar. :S
Tala bara ekki við fólkið.
Oddur Freyr skrifaði 28.9.2005 22:09
hey borgar ég bíð enn eftir að þú sendir mér leyniorðið í tölvupósti....
oddur það er hægt að fá nýtt skattkort hjá skattstjóra en væntanlega er þessi krísa leist því það er komið fram yfir mánaðarmót
sigrún frænka skrifaði 6.10.2005 17:05
Spurning mín snýst um sögnina að finnast.
Ég sé það svo víða að fólk beygir þessa sögn ekki eftir persónufornafni sem með henni er notað, heldur beygir það sögnina eftir orðinu sem það er að lýsa yfir að því finnist eitthvað um.
Sbr: "Mér finnast svona net-fad "
Ég vil því spyrja hvort réttara er að segja ef til dæmis við erum að tala um stjórnmálamenn:
"Mér finnst stjórnmálamenn skorta virðingu" eða þá "mér finnast stjórnmálamenn skorta virðingu".
Ætti það ekki að beygjast eftir persónufornafninu sem á við um þann sem finnst þetta? Ég tel svo vera, en hef tekið eftir því að sögnin er oft notuð á hinn veginn.
Edda skrifaði 23.10.2005 15:51
"Mér finnst stjórnmálamenn skorta virðingu." er réttara. Sögning beygist eftir persónu frumlags (mér).
Ég hef breytt textanum í réttara mál, en á svosem ekki von á því að ég hætti að gera þessi mistök. :-P
Borgar skrifaði 23.10.2005 19:16