Tekken top of the world
Tekken mótið fór fram á laugardaginn. Frábær stemning og mikil keppnisgleði riðu rækjum á Lokastígnum þetta kveld og virtist mér gestir vera allmennt sammála um að þetta hefði verið vel heppnað.
Ég vil þakka þátttakendum fyrir drengilega framkomu og góða umgengni. Þó fær Lína sérstakar kveðjur fyrir að vera bad-ass! Fyrir mitt leiti stendur nefnilega mest eftir að hafa fengið tækifæri til þess að spila við nýjan góðan andstæðing.
Vonandi verð ég kominn með eina eða tvær myndir af eventinu í hendurnar fljótlega.

3 ummææli við “Tekken top of the world”
Jamm, almennt mjög sammála. Takk fyrir mig.
krilli skrifaði 10.8.2005 13:03
Þetta var æði. Þó fannst mér átakanlegur skorturinn á skammarverðlaunum. En ég verð þá bara að skipta um taktík og vinna næst. :-)
Bre skrifaði 11.8.2005 13:34
Sammála! Mér var líka skemmt, enda vann ég... Það er þó verst að mamma og pabbi voru ekkert sérstaklega stolt af mér... Þau gera sér enga grein fyrir því hversu mikið afrek þetta var...!
Bassastingurinn skrifaði 11.8.2005 13:53