laugardagur, 2. júl 2005

The King of Iron Fist Tournament

Fight!

Ég man ennþá eftir því þegar ég sá og spilaði Tekken 3 í fyrsta skipti. Ég trúði bara ekki mínum eigin augum. Hér var loksins kominn leikur sem var allt það sem IK+ var og gott betur. Ég fór strax og keypti mér eintak og PS1.

Um daginn átti ég svo leið um Skífuna og sá að nýjasti leikurinn var spilanlegur í vélinni. Ég þurfti ekki nema eina umferð til þess að ákveða að ég yrði að eignast hann.

Ég er því búinn að kaupa mér PS2, Tekken 5 og fá lánaðan skjávarpa. Þar að auki lánaði Oddur mér nokkra aðra leiki fyrir vélina. Ég er sumsé ekki að fara út úr húsi þessa helgi. Ég sé fram á að verða með blöðrur á þumlunum á mánudaginn.

Ég er eignilega bara frekar sáttur við nýja leikinn. Hann er allt það sem 3 var og gott betur. Að auki getur maður spilað Aracde útgáfunar af 1, 2, og 3 (sem ég reikna samt ekki með að gera mikið).

Það eina sem ég hef undan að kvarta er að endakallinn, Jinpachi Mishima, er allt of erfiður (lesist "gjörsamlega óður"). Við erum að tala um að í "Easy mode" á hann það til að rúlla manni upp með því að bomba mann með því að frysta mann í loftinu, sjúga úr manni orkuna og bæta á sína, og skjóta mann svo með algjörlega óverjanlegum eldkúlum.

Ég er svoldið vonsvikinn að Namco skildu fara þessa ódýru leið frekar en að þróa þeim mun betri gervigreind. En hvorugt hefur svosem mikil áhrif á mig þar sem ég spila mest við strákana mína, og þeir eru með alvöru greind (sem er allavega einum betri en gervi). Þetta eru kannski "ljóðræn örlög" og bara gott á mig að fá að finna fyrir því máttleysi sem aðrir þurfa að upplifa á móti mér þegar ég er í stuði. ;-)

2 ummææli við “The King of Iron Fist Tournament”

  1. Tekken-mót, bráðum?

    Helga skrifaði 8.7.2005 13:49

  2. Ég skal redda myndvarpa, tölvu, hljóðkerfi og húsnæði -- þið mætið með ykkar eigin bjór.

    Borgar skrifaði 8.7.2005 13:52


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar